Hoppa yfir valmynd
22. júní 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Rammasamþykkt um stefnu í vinnuverndarmálum

Alþjóðavinnumálastofnunin ILO
Alþjóðavinnumálastofnunin ILO

95. Alþjóðavinnumálaþingið, þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) sem er ein af sérstofnunum Sameinuðu þjóðanna, var háð í Genf í Sviss dagana 31. maí til 16. júní sl. Samtals sóttu þingið um 4000 fulltrúar. Samkvæmt stofnskrá ILO ber aðildarríki að senda til þingsins sendinefnd skipuðum tveimur fulltrúum hlutaðeigandi ríkisstjórnar, einum fulltrúa atvinnurekenda og einum fulltrúa launafólks. Að auki er heimilt er að senda sérfræðinga og ráðgjafa eftir ákveðnum reglum. Þingforseti var kosinn Cestmir Sajda, aðstoðarvinnu- og félagsmálaráðherra Tékklands. Varaþingforsetar voru kosin Aisha Abdel Hady ráðherra vinnu- og innflytjendamála í Egyptalandi, Jorge de Regil fulltrúi atvinnurekenda í Mexíkó og N.M. Adyanthaya fulltrúi launafólks á Indlandi.

Sérstakir gestir forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf, Juan Somavia, og Alþjóðavinnumálaþingsins voru Ellen Johnsson Sirleaf, forseti Líberíu, og Oscar Arias Sánchez, forseti Kosta Ríka.

Alþjóðavinnumálaþingið afgreiddi nýja alþjóðasamþykkt um vinnuvernd. Um er að ræða rammasamþykkt sem miðar að því að auka meðvitund um gildi forvarna að því er varðar slysahættu á vinnustöðum og atvinnusjúkdóma með áætlun á sviði vinnuverndar. Nánari útfærsla á samþykktinni er að finna í tilmælum sem einnig voru afgreidd á þinginu. Á þinginu ríkti mikill einhugur meðal fulltrúa um afgreiðslu þessara tveggja gerða.

Þingið afgreiddi enn fremur tilmæli um ráðningarsamband atvinnurekanda og launamanns. Markmið þeirra er að hvetja til setningu reglna í samvinnu við atvinnurekendur og launafólk þar sem kveðið er skýrt á um forsendur þess að ráðningarsamband hafi komist á og greint sé með virkum hætti á milli þeirra sem eru launamenn og hinna sem eru sjálfstætt starfandi. Á þennan hátt verði spornað gegn gerviverktöku. Þótt tilmælin hafi fengið tilskilinn stuðning þingfulltrúa til að ná fram að ganga var ágreiningur um málið þar sem fulltrúar atvinnurekenda greiddu atkvæði gegn þeim.

Umfangsmest á alþjóðavinnumálaþinginu er umfjöllun um framkvæmd aðildarríkjanna á alþjóðasamþykktum. Mesta athygli vakti umræða um framkvæmd Burma – Myanmar á framkvæmd alþjóðasamþykktar um afnám nauðungarvinnu. Alþjóðavinnumálastofnunin hefur lengi gagnrýnt herforingjastjórnina í Burma fyrir aðgerðarleysi gagnvart spilltum embættismönnum stjórnvalda sem hafa nýtt sér varnarleysi borgaranna og m.a. þvingað þá til ólaunaðra starfa. Á þinginu fóru fram umræður um næstu skref í þessu alvarlega máli. Ákveðið var að gefa stjórnvöldum í Burma sex mánaða frest til að hrinda í framkvæmd umbótum. Rætist ekki úr málum á þeim tíma er m.a. rætt um að stefna stjórnvöldum fyrir Alþjóðadómstólinn í Hag. Þingið lýsti yfir sérstökum áhyggjum yfir framkvæmd stjórnvalda í Hvíta-Rússlandi á samþykktum um félaga- og samningafrelsi og í Bangladess á samþykkt um félagafrelsi.

Á þinginu fór fram almenn umræða um aðstoð Alþjóðavinnumálastofnunar við þróunarríki. Var til þess tekið að á sl. áratug hafa orðið verulegar breytingar á formi og skipulagi aðstoðarinnar sem hefur gert hana árangursríkari. Rík áhersla var lögð á samstarf ríkisvalds, atvinnurekenda og launafólks við þróunaraðstoðina.

Fulltrúar Íslands á 95. Alþjóðavinnumálaþinginu voru: Frá félagsmálaráðuneyti: Gylfi Kristinsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, og Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins. Frá fastanefnd Íslands í Genf: Kristinn F. Árnason sendiherra, Einar Gunnarsson sendifulltrúi, Anna Jóhannsdóttir sendiráðunautur og Edda Magnús sendiráðsritari. Frá Alþýðusambandi Íslands Magnús Norðdahl og Sigurður Magnússon. Frá Samtökum atvinnulífsins: Hrafnhildur Stefánsdóttir og Jón H. Magnússon.

Nánari upplýsingar um þingið er að finna á heimasíðu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar: http://www.ilo.org



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum