Hoppa yfir valmynd
16. maí 2014 Dómsmálaráðuneytið

Auglýsing um framlagningu kjörkrár

Hér fer á eftir auglýsing innanríkisráðuneytisins, dagsett 16. maí 2014, um framlagningu kjörskrár vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.

Auglýsing um framlagningu kjörskrár vegna sveitarstjórnarkosninga.

 Kjörskrár vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014 skulu lagðar fram almenningi til sýnis eigi síðar en miðvikudaginn 21. maí nk. á skrifstofu viðkomandi sveitarstjórnar eða öðrum hentugum stað sem sveitarstjórnin auglýsir. Kjörskrá skal liggja frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags.

 Athugasemdum við kjörskrá skal koma á framfæri við hlutaðeigandi sveitarstjórn eins fljótt og unnt er og skal sveitarstjórn þegar taka til meðferðar athugasemdir og gera viðeigandi leiðréttingar á henni. Leiðréttingar má gera fram á kjördag en athygli er vakin á því að óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist Þjóðskrá Íslands fyrir 10. maí s.l.

Nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí nk. er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is

 Innanríkisráðuneytinu 16. maí 2014

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum