Hoppa yfir valmynd
5. desember 2017 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 70/2017 Úrskurður 24. nóvember 2017

Mál nr. 70/2017                     Eiginnafn: Ævi

 


 

Hinn 24. nóvember 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 70/2017 en erindið barst nefndinni 23. nóvember

Eiginnafnið Ævi (kvk.) tekur íslenskri beygingu, Ævi – um Ævi – frá Ævi – til Ævi. Til samanburðar beygist eiginnafnið Þyri (kv.) á sama hátt og ýmis kvenkyns samnöfn, s.s. gleði og speki. Eiginnafnið Ævi telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ævi (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum