Hoppa yfir valmynd
24. janúar 2003 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 23. janúar 2003

Þann 23. janúar 2003, var fundur haldinn í mannanafnanefnd. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.


Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:


Mál nr. 1/2003


Eiginnafn: Melinda (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Melinda tekur eignarfallsendingu (Melindu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.


Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Melinda er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.


 


Mál nr. 2/2003


Eiginnafn: Kiljan (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Kiljan tekur eignarfallsendingu (Kiljans) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.


Úrskurðarorð:


Beiðni um eiginnafnið Kiljan er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.


 


Mál nr. 3/2003


Eiginnafn: Fengur (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Fengur tekur eignarfallsendingu (Fengs) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.


Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Fengur er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.


 


Mál nr. 4/2003


Eiginnafn: Sophus (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Sophus telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.


Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sophus er samþykkt og verður það fært á mannanafnaskrá.


 


Mál nr. 5/2003


Eiginnafn: Sigurlinn (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Sigurlinn tekur eignarfallsendingu (Sigurlinnar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sigurlinn er samþykkt og verður það fært á mannanafnaskrá.


 

Fleira ekki gert.


Fundi slitið.

Andri Árnason

Guðrún Kvaran

Margrét Jónsdóttir

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum