Hoppa yfir valmynd
20. mars 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 130/2018 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 20. mars 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 130/2018

Í stjórnsýslumáli nr. KNU18030009

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

 

Þann 4. mars 2018 barst kærunefnd útlendingamála kæra […], fd. […], ríkisborgara Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. febrúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Svíþjóðar. Þann 13. febrúar 2018 var ákvörðun Útlendingastofnunar birt fyrir kæranda.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Á birtingarvottorði sem fylgdi með ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að ákvörðunin var birt kæranda þann 13. febrúar 2018 og þá kemur einnig fram að kærandi hafi tekið sér lögbundinn 15 daga kærufrest til að ákvarða um kæru. Kært var fyrir hönd kæranda þann 4. mars 2018. Ljóst er því að kærufresturinn, sem var til 28. febrúar 2018, var liðinn þegar kæran barst.

Þar sem kæran barst að liðnum kærufresti var kæranda, með tölvupósti kærunefndar, dags. 5. mars 2018, veittur frestur til 9. mars 2018 til að gera grein fyrir ástæðum þess að kæran barst ekki fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í bréfi til kærunefndar þann 8. mars 2018 greindi talsmaður kæranda frá ástæðum þess hvers vegna kæra barst of seint. Í bréfinu vísar talsmaður kæranda til þess að hún hafi haft samband við kæranda áður en kærufrestur hafi runnið út og kærandi hafi tjáð henni að hann kysi að kæra ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. febrúar 2018. Hins vegar hafi persónulegar ástæður talsmanns, s.s. mikið álag og nokkurra daga frí, komið í veg fyrir að ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið kærð innan kærufrests. Þá sé þess farið á leit við kærunefnd að taka kæru kæranda til greina þrátt fyrir að hún hafi borist nefndinni að liðnum kærufresti með tilliti til frásagnar kæranda af flótta hans frá heimaríki, ungs aldurs hans og þess að hann hafi fengið lokasynjun í máli sínu hjá sænskum stjórnvöldum.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar, sem birt var kæranda og löglærðum talsmanni hans hjá Rauða krossinum þann 13. febrúar 2018, er að finna leiðbeiningar um kæruleið og kærufresti. Mátti því kæranda og talsmanni hans vera ljóst hvaða reglur giltu um kæru til æðra stjórnvalds. Ekki verður séð að þær upplýsingar sem kæranda voru veittar í ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi kæru til kærunefndar útlendingamála hafi verið ófullnægjandi eða að leiðbeiningarskyldu hafi ekki verið gætt.

Eins og áður hefur komið fram var ákvörðun Útlendingastofnunar birt kæranda þann 13. febrúar 2018 og var 15 daga kærufrestur skv. 7. gr. laga um útlendinga því til 28. febrúar 2018. Kæra kæranda barst kærunefnd hins vegar ekki fyrr en 4. mars sl., eða 4 dögum eftir að kærufresturinn leið. Kærunefnd telur að þær athugasemdir sem færðar hafa verið fram leiði ekki til þess að afsakanlegt geti talist að kæra hafi ekki borist kærunefnd fyrr. Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda, greinargerð talsmanns og komunótur kæranda frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. desember 2017 til 29. janúar 2018. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar.

Í ljósi alls ofangreinds er það mat kærunefndar að þær ástæður sem kærandi ber fyrir sig teljist ekki veigamiklar í skilningi 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, eða að afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist innan þess tímaramma sem lögin áskilja.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

 

The Immigration and Asylum Appeals Board dismisses the applicant appeal of the decision of the Directorate of Immigration.

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                       Þorbjörg Inga Jónsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum