Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fundur norrænna ráðherra vinnumála gegn félagslegum undirboðum

Norrænu vinnumálaráðherrarnir - myndVelferðarráðuneytið

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, fjallaði m.a. um innleiðingu jafnlaunavottunar, frumvarp um keðjuábyrgð og réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og um nýtt samkomulag ASÍ (Alþýðusambands Íslands) og SA (Samtaka atvinnulífsins) um starfsmannaleigur á fundi ráðherranna.

Brotastarfsemi á borð við svarta vinnu, skattsvik, mansal og félagsleg undirboð á vinnumarkaði voru meginumfjöllunarefni fundar norrænna ráðherra vinnumála í Stokkhólmi fyrir helgi. Á fundinum samþykktu ráðherrarnir sameiginlega yfirlýsingu um heilbrigða samkeppni og réttlátar starfsaðstæður á vinnumarkaði. Meginboðskapur yfirlýsingarinnar felur í sér að fyrirtæki eigi að keppa á grundvelli þekkingar og hæfni en ekki hagnast á því að greiða lág laun og vanrækja starfsumhverfi og öryggi starfsfólksins. Yfirlýsingin verður send framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Frumvarpinu sem Ásmundur Einar sagði frá á fundinum og er nú til umfjöllunar á Alþingi felur í sér tillögur um breytingar á ýmsum lögum sem gilda á innlendum vinnumarkaði, m.a. í því skyni að bregðast við tilteknum aðstæðum sem upp hafa komið við framkvæmd viðkomandi laga, s.s. í tengslum við eftirlit á vinnumarkaði. Lagt er til að kveðið verði á um svokallaða keðjuábyrgð notendafyrirtækja í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og að Vinnumálastofnun verði heimilt að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem veita stofnuninni ekki upplýsingar og/eða aðgang að gögnum í samræmi við lög um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra.

Samkomulag ASÍ og SA um starfsmannaleigur sem Ásmundur Einar kynnti á fundi ráðherranna fjallar um eftirlit með launum og starfskjörum starfsmanna starfsmannaleiga, ábyrgð notendafyrirtækja og sérstaka viðurkenningu á starfsmannaleigum.

Í tengslum við ráðherrafundinn var haldin ráðstefna um aðlögun kvenna af erlendum uppruna að vinnumarkaðinum. Fyrir liggur ný skýrsla um stöðu þessara mála á Norðurlöndunum Nyanlända kvinnors etablering: En komparativ studie av nyanlända kvinnors etablering på arbetsmarknaden i Norden och de etableringspolitiska insatserna og var efni hennar kynnt á ráðstefnunni.

Á myndinni hér að neðan má sjá norrænu vinnumálaráðherranna ásamt Stefano Scarpetta, forstjóra Vinnu- og félagsmálastofnunar OECD í panelumræðum um aðlögun kvenna af erlendum uppruna að vinnumarkaðinum sem efnt var til á ráðstefnunni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum