Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2013 Dómsmálaráðuneytið

Breytt heiti stjórnmálasamtaka og nýr listabókstafur

Innanríkisráðuneytinu hafa borist tilkynningar frá tvennum stjórnmálasamtökum um breytt heiti. Jafnframt hefur ráðuneytið ákveðið listabókstaf fyrir ein stjórnmálasamtök. Ráðuneytið hefur birt auglýsingar þar að lútandi í samræmi við lög um kosningar til Alþingis.

I-listi: Flokkur heimilanna
Ráðuneytinu hefur borist tilkynning um að stjórnmálasamtökin Lýðveldisflokkurinn hafi breytt heiti sínu í Flokkur heimilanna. Með auglýsingu nr. 209 4. mars 2013 ákvað ráðuneytið listabókstafinn I fyrir stjórnmálasamtökin Lýðveldisflokkinn. Ráðuneytið ákvað að stjórnmálasamtökin, sem nú heita Flokkur heimilanna, hafi skráðan listabókstafinn I.

Sturla Jónsson, K-listi
Þá hefur innanríkisráðuneytinu enn fremur borist tilkynning um að stjórnmálasamtökin Framfaraflokkurinn hafi breytt heiti sínu í Sturla Jónsson, K-listi.  Með auglýsingu nr. 210 4. mars 2013 ákvað ráðuneytið listabókstafinn K fyrir stjórnmálasamtökin Framfaraflokkinn. Ráðuneytið ákvað að stjórnmálasamtökin, sem nú heita Sturla Jónsson, K-listi, hafi skráðan listabókstafinn K.

M-listi: Landsbyggðarflokkurinn
Ráðuneytið hefur ákveðið listabókstaf fyrir stjórnmálasamtök sem ekki buðu fram lista við síðustu almennar alþingiskosningar 2009, sbr. auglýsingu nr. 319/2013:
M-listi: Landsbyggðarflokkurinn

Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis skal innanríkisráðuneytið halda skrá um listabókstafi stjórnmálasamtaka sem buðu fram lista við síðustu almennar alþingiskosningar og ákveða bókstaf nýrra samtaka að fengnum óskum þeirra, með hliðsjón af listabókstöfum annarra stjórnmálasamtaka í undangengnum kosningum.

Þó að stjórnmálasamtök hafi fengið úthlutað listabókstaf er það ekki formleg tilkynning um framboð. Landskjörstjórn auglýsir framboðslista eigi síðar en tíu dögum fyrir kjördag.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum