Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Unnið verði yfirmat á verðmæti lands sem ríkið keypti á Geysissvæðinu

Frá Geysissvæðinu. - myndIStock

Ríkissjóður hefur farið fram á að unnið verði yfirmat á verðmæti lands á Geysissvæðinu sem ríkið keypti af sameigendum sínum í október 2016, en matið verður bindandi fyrir báða aðila kaupsamningsins.

Forsaga málsins er að 7. október 2016 keypti ríkið eignarhlut sameigenda sinna á Geysissvæðinu. Svæðið sem keypt var umlykur séreignarland ríkisins innan girðingar þar sem hverirnir Geysir og Strokkur eru. Eignarhlutur ríkisins í sameignarlandinu fyrir kaupin var 25,28% en sameigenda 74,72%.

Þar sem ekki náðist samkomulag um verðmæti hins keypta eignarhluta var ákveðið að dómkvöddum matsmönnum yrði falið að úrskurða um kaupverð sameignarlandsins. Málsmeðferð fyrir matsmönnum var með svipuðum hætti og fyrir matsnefnd eignarnámsbóta þar sem lögmönnum beggja aðila gafst færi á að skila greinargerðum um málið ásamt öðrum gögnum auk þess sem málið var flutt af lögmönnum beggja aðila fyrir matsnefndinni.

Hinir dómkvöddu matsmenn skiluðu matsgerð sinni 1. desember sl. Matsmenn lögðu til grundvallar í niðurstöðu sinni að ekki væri annað fært en að miða verðmæti landsins út frá því að hægt yrði að innheimta aðgangseyri að svæðinu. Markaðsverð landsins er því fundið út frá þessum forsendum.

Miðað við þær forsendur sem matsmenn gáfu sér er kaupverð spildunnar að frádregnum hlut ríkissjóðs í sameignarspildunni metið á 1.113 m.kr. sem væri sú fjárhæð sem greiða þyrfti sameigendum samkvæmt kaupsamningi.

Með hliðsjón af niðurstöðu verðmatsins var það mat ríkisins að ekki væri annað forsvaranlegt í stöðunni en að óska eftir fimm manna yfirmati á verðmæti landsins sem báðum samningsaðilum er heimilt að gera. Niðurstaða yfirmatsins verður bindandi fyrir báða aðila kaupsamningsins um endanlegt kaupverð eignarhlutans. Gera má ráð fyrir að niðurstaða yfirmats liggir fyrir síðar á þessu ári.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum