Hoppa yfir valmynd
28. nóvember 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 525/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 28. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 525/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18100047

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 23. október 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. október 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Kærandi gerir aðallega þá kröfu að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi. Til vara gerir kærandi þá kröfu að umsókn hennar um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 2. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 20. júní 2018. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 31. ágúst 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 8. október 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 9. október 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 23. október 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 1. nóvember 2018, ásamt fylgigagni. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og dvalarleyfi með gildistíma til 1. ágúst 2019.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var komist að þeirri niðurstöðu að 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði send aftur til Grikklands. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hún væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var einnig mat stofnunarinnar að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ætti ekki við í máli kæranda. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Þá kom fram að kærandi skyldi flutt til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram lýsing á aðstæðum hennar í heimaríki og ástæðum þess að hún hafi flúið þaðan og til Grikklands. Fram kemur að fyrst um sinn hafi kærandi dvalið í flóttamannabúðum í Grikklandi. Kærandi telji að hún hafi aldrei verið örugg þar og mikið hafi verið um að karlar hafi hrópað ókvæðisorð að sér og viljað gera sér illt. Þá kemur fram að kærandi hafi farið með bandarískri fjölskyldu til Aþenu en þegar fjölskyldan hafi farið þaðan þá hafi kærandi neyðst til að halda til á götunni. Kærandi hafi orðið fyrir tilraun til nauðgunar á meðan hún hafi dvalið í Aþenu. Að lokum hafi kærandi fengið vinnu á hóteli sem hafi verið mjög afskekkt. Fljótlega hafi komið í ljós að kærandi hafi þurft að vinna 18-20 tíma á dag án þess að hún hafi fengið greidd laun í fyrstu. Eftir að hún hafi ítrekað beiðni sína um laun hafi hún fengið um 300 evrur á mánuði sem hún hafi sent til systur sinnar og barna í heimaríki. Kærandi hafi þurft að vinna alla daga og verið vakin á nóttunni til að vinna. Hún hafi starfað við þessar aðstæður í eitt og hálft ár þar til hún hafi komist í samband við fólk sem hafi þekkt Íslendinga sem hafi verið tilbúnir að taka á móti henni hér á landi.

Fram kemur að kærandi noti annað nafn en hennar eigið af ótta við að einhver muni bera kennsl á sig. Kærandi hafi snúist til kristinnar trúar og stafi því mikil hætta frá öfgahópum. Kærandi þjáist af líkamlegum og andlegum veikindum, hún sé grátgjörn, þunglynd, sofi illa, sé alltaf stressuð og sífellt að hugsa til barna sinna sem hún hafi ekki séð í 3 ár. Stundum haldi kærandi að hún sé að fá hjartaáfall, þar sem hún eigi erfitt með andardrátt og sé með verk í bringunni. Kærandi vilji ekki fara aftur til Grikklands enda óttist hún að vera ein á ferð sem kona og verða fyrir ofbeldi líkt og því sem hún hafi áður orðið fyrir.

Kærandi byggir kröfu sína í fyrsta lagi á því að ekki megi senda hana til Grikklands vegna non-refoulement reglu þjóðaréttar enda standi hún frammi fyrir raunverulegri hættu á því að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga megi ekki senda útlending til svæðis þar sem hann sé í yfirvofandi hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Kærandi telur að hún eigi hættu á að vera tekin af lífi verði henni gert að snúa aftur til Grikklands vegna öfgahópa þar í landi. Þá hafi kærandi búið við óviðunandi og mannskemmandi aðstæður í Grikklandi þar sem hún hafi verið þolandi mansals.

Kærandi byggir kröfu sína í öðru lagi á því að taka skuli mál hennar til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og bendir m.a. á að hún hafi þurft að búa við hræðilegar aðstæður og orðið fyrir líkamlegu, kynferðislegu og andlegu ofbeldi. Þá sé kærandi einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í ljósi þess að hún geti ekki snúið aftur til barna sinna í heimaríki. Þá komi fram í vottorði sálfræðings að kærandi þjáist af mjög miklum og alvarlegum andlegum veikindum. Kærandi telur að fyrir hendi séu bæði sérstök tengsl við landið og sérstakar ástæður sem leggi þá skyldu á íslensk stjórnvöld að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Kærandi byggir á því að ekki sé tækt að endursenda hana til Grikklands þar sem um kerfisbundinn galla sé að ræða á aðbúnaði og meðferð einstaklinga með alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi bendir á að stjórnvöld hafi byggt á því að slíkur galli þurfi að vera til staðar svo unnt sé að beita fullveldisreglu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í framkvæmd hafi íslensk stjórnvöld túlkað hugtakið með mjög ströngum hætti og afar erfitt hafi reynst að sýna fram á að málsmeðferð og aðbúnaður umsækjenda um alþjóðlega vernd sé svo slæmur að um kerfisbundinn galla sé að ræða í viðtökuríki.

Kærandi gerir athugasemdir við aðstæður og réttindi umsækjenda og þeirra sem hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Bendir kærandi á að flóttamenn fái enga fjárhagsaðstoð, engan andlegan stuðning, ekkert húsaskjól og eigi erfitt með aðgengi að vinnumarkaði. Kærandi áréttar að íslensk stjórnvöld geti ekki skýlt sér á bak við það að á forminu til teljist grísk stjórnvöld uppfylla allar lagalegar skyldur sem á þau eru lögð vegna einstaklinga sem séu í leit að alþjóðlegri vernd þegar raunveruleikinn sé annar. Vísar kærandi til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 máli sínu til stuðnings. Einstaklingum með dvalarleyfi í Grikklandi sé vísað á götuna og sökum þess að atvinnuleysi sé hátt og vegna stöðu flóttamanna almennt þá reynist þeim aðgengi að vinnumarkaðnum erfitt. Þá bendir kærandi á að dvalarleyfiskort hennar verði útrunnið þegar og ef henni verði gert að snúa til baka til Grikklands. Kærandi telji að ef umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint þá séu verulegar líkur á því að umsókninni verði synjað auk þess sem hún geti átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi með alþjóðlega vernd í Grikklandi og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 1. ágúst 2019. Eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar aftur til ríkisins sem hefur veitt honum slíka vernd, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður kærunefnd því að leggja mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar. Þá þarf að líta til stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Greining á hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] ekkja og fimm barna móðir. Í framlögðum komunótum Göngudeildar sóttvarna kemur fram að hún sé líkamlega heilbrigð en að hún þjáist m.a. af kvíða og andlegri vanlíðan vegna fjarveru frá börnum sínum og fjölskyldu. Þá kveðst kærandi hafa orðið fyrir áreitni og tilraunum til nauðgunar á flótta frá heimaríki og í Grikklandi. Í gögnum málsins er að finna sálfræðiálit þar sem fram kemur að kærandi hafi heimsótt sálfræðing í þrígang. Kemur fram að niðurstöður skimunarprófs gefi vísbendingar um að kærandi sé haldin áfallastreituröskun. Í sálfræðiálitinu segir enn fremur að niðurstöður úr viðtölum bendi til mjög mikils og alvarlegs andlegs vanda kæranda og að mikilvægt sé að finna farsæla lausn á máli hennar sem fyrst til þess að hún geti fengið viðeigandi meðferð við vanda sínum.

Samkvæmt framansögðu er kærandi einstæð kona sem kveðst hafa orðið fyrir áföllum auk þess sem fyrir liggur mat sálfræðings á því að andlegur vandi hennar sé alvarlegur. Í því ljósi og með vísan til gagna um andlega heilsu kæranda er það mat kærunefndar að hún sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018),
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018),

  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018),
  •  

  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017),
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017),
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017),
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017),

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016),
  •  

  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015),
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015) og
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í ofangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans. Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 fjallaði dómstóllinn um endursendingar einstaklinga til ríkja þar sem þeir hafa hlotið alþjóðlega vernd. Í ákvörðuninni kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við slíka endursendingu nái ekki alvarleikastigi 3. gr. sáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda en kærandi kveður m.a. að líf hennar í Grikklandi hafi verið mjög erfitt þar sem erfitt hafi reynst að fá atvinnu, húsnæði og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Kemur framangreind frásögn kæranda að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar erfitt aðgengi að vinnumarkaðnum, félagslegu húsnæði og framfærslu frá yfirvöldum. Þá óttist kærandi um öryggi sitt verði hún endursend til Grikklands enda hafi henni verið hótað þar í landi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hennar verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur aðgang að vinnumarkaði og sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar. Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við fordómum í landinu, m.a. með því að grípa til hertra aðgerða til að sporna við brotum sem byggjast á kynþáttafordómum. Þá verður ekki ráðið af framangreindum gögnum að kynferðislegt eða kynbundið ofbeldi viðgangist almennt í Grikklandi í skjóli kerfisbundins refsileysis. Þá má jafnframt ráða af framangreindum gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögreglu eða annarra stjórnvalda þar í landi.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hennar sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi eiga þeir sem hefur verið veitt alþjóðleg vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Þá eiga þeir einnig rétt á endurgjaldslausum lyfjum, rannsóknum á göngudeildum og aðgangi að sjúkrahúsi, auk þess sem þeir eiga rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi.

Í greinargerð kæranda er vísað til hugtaksins kerfisbundinn galli og vísað til dóma Evrópudómstólsins og Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem dómstóllinn fjallaði m.a. um ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem hugtakið kemur fyrir. Kærunefnd bendir á að kærandi er handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og því geta ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar, einkum varðandi endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis, móttökuskilyrði og önnur atriði sem snúa að málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd, ekki átt við í máli kæranda.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 31. ágúst 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína þann 20. júní 2018.

Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar

Kærandi gerir í greinargerð sinni athugasemd við rannsókn stjórnvalda á aðstæðum sem komi til með að bíða kæranda í Grikklandi. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir þar um. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 19. apríl 2018. Hún sótti um alþjóðlega vernd þann 20. júní 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hennar um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

 

Árni Helgason                                                                                  Erna Kristín Blöndal

                                                                                             

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum