Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Öryggi og velferð barna og ungmenna: Skýrari umgjörð um eineltismál

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi sem miðar að því að styrkja lagastoð og heimildir fagráðsráðs eineltismála.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra:
„Hlutverk fagráðsins er að veita skólasamfélaginu stuðning vegna eineltismála með ráðgjöf, leiðbeiningum og upplýsingamiðlun. Það hefur sýnt sig að sú þjónusta er afar dýrmæt fyrir skólasamfélagið og með þessari lagabreytingu er markmið okkar að styrkja starf og umgjörð ráðsins enn betur. Einelti er samfélagslegt mein og er brýnt að allir leggi sitt af mörkum til að uppræta það.“

Fagráð eineltismála starfar nú bæði fyrir grunn- og framhaldsskóla en vísa má eineltismálum til ráðsins þegar ekki finnst fullnægjandi lausn á þeim innan skóla eða sveitarfélags. Ráðið veitir álit sín á grundvelli gagna og upplýsinga sem því berast. Slík álit hafa meðal annars að geyma leiðbeiningar til aðila skólasamfélagins, svo sem foreldra, um hvernig vinna megi að úrlausn mála með hagsmuni barna að leiðarljósi.

Í frumvarpinu er meðal annars kveðið á um skýrari heimildir ráðsins til þess að vinna með persónuupplýsingar og heimild til að takmarka aðgang aðila að gögnum ef talið er að slíkt getis skaðað hagsmuni barns, til samræmis við ákvæði barnaverndarlaga. Aukinheldur er fjallað um skipan ráðsins og hæfniskröfur sem gerðar eru til þeirra sem þar eiga sæti.

Fagráð eineltismála er ekki stjórnvald í skilningi stjórnsýslulaga þar sem álit þess eru ráðgefandi. Niðurstöður þess eru því ekki skuldbindandi fyrir aðila máls gagnvart öðrum úrræðum sem lög og reglur kunna að bjóða upp á.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum