Hoppa yfir valmynd
6. júlí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 382/2023 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 6. júlí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 382/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23020064

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 21. febrúar 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. febrúar 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laganna.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 15. júlí 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 4. ágúst 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 20. febrúar 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 21. febrúar 2023. Viðbótarupplýsingar bárust kærunefnd 19. júní 2023.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna ótta við ofsóknir af hálfu Al-Shabaab samtakanna og ótta við að verða drepinn.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Kærandi skilaði ekki inn greinargerð vegna kæru sinnar til kærunefndar. Í kæru kæranda er vísað til frásagnar kæranda af flótta hans frá heimaríki sem rakin sé í greinargerð hans til Útlendingastofnunar. Frásögn kæranda sé einnig rakin í ákvörðun Útlendingastofnunar, en hún hafi verið á þá leið að hann hafi verið handtekinn af Al-Shabaab ásamt vinkonu sinni vegna ásakana um framhjáhald og njósnir. Þau hafi verið færð í fangelsi þar sem kæranda hafi verið tjáð að hann yrði grýttur til dauða. Kærandi hafi verið pyntaður og hótað því að verða hálshöggvinn til þvinga fram játningu hans. Honum hafi tekist að flýja úr fangelsinu til Kenía og þaðan til Íslands. Al-Shabaab hafi leitað að kæranda eftir að hann hafi flúið fangelsið og telur hann sig ekki geta snúið aftur til heimaríkis síns af ótta við samtökin. Því sé kærandi í verulegri lífshættu í heimaríki sínu. Telja verði ljóst að kærandi falli undir flóttamannahugtakið og uppfylli skilyrði fyrir alþjóðlegri vernd á Íslandi samkvæmt lögum um útlendinga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem sé til þess fallið að sanna á sér deili og því hafi hann ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni hans á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 2. júní 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
  • Al-shabaab laga saaray degmada [...] ee gobolka Hiiraan (http://wardoon.net/so/al-shabaab-laga-saaray-degmada-[...]-ee-gobolka-hiiraan/, 25. september 2022);
  • Al-shabaab oo dib ula wareegtay gacan ku haynta deegaanada [...] & Yasooman (https://horseedmedia.net/al-shabaab-ayaa-dib-ula-wareegtay-gacan-ku-haynta-deegaanada-[...]-yasooman-373917, 1. október 2022);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
  • Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
  • Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
  • Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
  • Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
  • Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
  • Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
  • Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
  • Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
  • EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
  • EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
  • Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, september 2022);
  • Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
  • Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
  • Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 - March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
  • Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. september 2013);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 17. febrúar 2021);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
  • Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
  • SNA Troops Edging Closer to [...] Town in Hiiraan (https://www.ftlsomalia.com/sna-troops-edging-closer-to-[...]-town-in-hiiraan/, 23. september 2022);
  • Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
  • Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
  • Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
  • Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
  • Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
  • Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
  • Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
  • Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
  • Somalia: Health system (The Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
  • Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
  • Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
  • Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
  • Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
  • Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
  • Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
  • South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
  • South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
  • The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 20. júní 2023);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
  • UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
  • Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í maí 2018);
  • Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, september 2021) og
  • World Report 2023 – Somalia: Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 bera hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hefur hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.

Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega milli landsvæða og séu hópar samtakanna sérstaklega virkir á svæðum þar sem ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar haldi sig. Í skýrslu dönsku flóttamannanefndarinnar frá árinu 2017 kemur fram að ýmsar ástæður geti legið að baki ofsóknum Al-Shabaab. Megi þar m.a. nefna alvarlegar refsiaðgerðir gegn óbreyttum borgurum sem ekki fari eftir reglum og hugmyndafræði samtakanna. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins geta hjúskaparbrot eða framhjáhöld varðað dauðarefsingu á yfirráðasvæðum Al-Shabaab. Einstaklingar sem grunaðir séu um slíkt séu almennt grýttir til dauða samkvæmt skýrslu kanadískra útlendingayfirvalda. Hver sá sem hafi einhvern tímann verið giftur, jafnvel fráskilinn, og eigi í ástarsambandi sé líklegur til að verða fundinn sekur um framhjáhald og vera grýttur til dauða af hálfu samtakanna.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 hafi Al-Shabaab borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.

Samkvæmt skýrslu Hiraal Institute tókst Al-Shabaab að ná yfirráðum af sómölskum stjórnvöldum yfir bænum [...] í Hiiraan umdæmi 15. september 2016. Sómölskum stjórnvöldum hafi tekist að ná yfirráðum yfir bænum 27. desember 2016 en Al-Shabaab hafi endurheimt þau degi síðar. Heimildir bera með sér að síðasta áratuginn hafi reglulega komið til átaka milli stjórnarhersins og Al-Shabaab í tengslum við baráttu þeirra um yfirráð yfir bænum. Samkvæmt sómölskum fréttamiðlum yfirgáfu Al-Shabaab [...] í september 2022, eftir að hafa farið með fulla stjórn yfir svæðinu, í kjölfar þess að sómalski stjórnarherinn, heimamenn og sveitir á þeirra vegum náðu stjórn á bænum. Margir hafi særst og látist í átökunum. Nokkrum dögum síðar hafi Al-Shabaab endurheimt yfirráð sín yfir [...] og öðrum bæjum í Hiiraan umdæmi með friðsamlegum hætti. Samkvæmt upplýsingum ACLED um stöðuna í Sómalíu í apríl og maí 2023 er Hiiraan umdæmi skjálftamiðja átakanna milli sómalska stjórnarhersins og Al-Shabaab, en heimildir bera með sér að Al-Shabaab fari með yfirráð yfir [...] um þessar mundir.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í skýrslunni kemur fram að í Sómalíu séu fjórir stærstu ættbálkarnir Darod, Hawiye, Isaaq og Dir. Samkvæmt skýrslunni hafi mikilvægi aðildar að tilteknum ættbálki breyst á undanförnum árum í höfuðborginni Mógadisjú. Hlutverk ættbálksins hafi í auknum mæli færst frá því að verja stöðu ættbálksins yfir í hlutverk félagslegrar aðstoðar og stuðnings. Þá sé lítið um ættbálkaerjur í Mógadisjú og afkoma meðlima minnihlutaættbálka ráðist ekki af aðild þeirra að ættbálkinum. Í skýrslunni kemur fram að víðtækur alþjóðlegur styrkur og stuðningur hafi hjálpað ríkisstjórn Sómalíu að bæta líf borgara sinna og almennt hafi lífsskilyrði íbúa í Mógadisjú batnað.

Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Í borginni sé aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu og apótekum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína á því að hann eigi á hættu ofsóknir í Sómalíu af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab vegna ásakana þeirra um að kærandi hafi átt í ástarsambandi utan hjónabands með kærustu sinni. Kærandi hafi flúið Sómalíu í maí árið 2022 eftir að hann hafi verið handtekinn og haldið föngnum af meðlimum samtakanna vegna framangreindra ásakana þeirra. Þá hafi þeir einnig sakað hann um njósnir fyrir sómölsk stjórnvöld. Kærandi hafi sætt pyndingum í fangelsinu. Honum hafi tekist að flýja fangelsið og farið til borgarinnar Kismayo í Sómalíu þar sem hann hafi dvalið í tvo daga. Hann hafi fengið fregnir af því að meðlimir Al-Shabaab væru að leita að honum og því hafi hann flúið til borgarinnar Nairobi í Keníu þaðan sem hann hafi flúið til Evrópu.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var lagt til grundvallar að kærandi kæmi frá [...] í Hiiraan umdæmi í Sómalíu og tilheyrði meirihlutaættbálkinum Hawiye. Í ákvörðuninni kemur fram að frásögn kæranda hafi verið ágætlega skýr og greinargóð. Kærandi gekkst undir tungumála- og staðháttapróf 19. september 2022 þar sem mállýska hans var borin saman við mállýskuna Benadiri sem töluð er í [...]. Kærandi hlaut einkunnina -2 í tungumálaprófinu, þ.e. að mállýska hans væri líklegast í ósamræmi við mállýskuna sem einkennandi sé fyrir talsmáta þeirra einstaklinga sem komi frá því svæði sem kærandi kveðst koma frá. Kærandi hafði þó góða kunnáttu á staðháttum í [...]. Lagt var annað próf fyrir kæranda þar sem byggt var á mállýsku í Norður-Sómalíu og hlaut kærandi þá einkunnina +1, þ.e. að mállýska hans væri, frekar en ekki, í samræmi við mállýskuna þar. Þá hafi kærandi talað sómölsku líkt og um móðurmál væri að ræða. Það var mat Útlendingastofnunar að þrátt fyrir að niðurstöður prófanna gæfu vísbendingu um að kærandi kynni að tilheyra svæði í Norður-Sómalíu þá væri ekki ástæða til að draga í efa að hann kæmi frá [...] í Hiiraan umdæmi í Sómalíu. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati. Verður því lagt til grundvallar í málinu að kærandi komi frá [...] í Hiiraan umdæmi í Sómalíu og tilheyri Hawiye ættbálknum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann hafi verið handtekinn af meðlimum Al-Shabaab í heimabæ sínum og haldið föngnum í 12 daga. Kærandi kvaðst hafa verið úti með kærustu sinni þegar tveir meðlimir samtakanna hefðu stoppað þau og spurt hvort þau væru gift. Þau hefðu neitað því þar sem mennirnir hafi þekkt þau. Mennirnir hafi þá sakað þau um hjúskaparbrot, handtekið þau og flutt í fangelsi þar sem þau hafi verið aðskilin. Mennirnir hafi síðan sagt við kæranda að þeir vissu að kærandi hafi einu sinni verið giftur og að hann yrði grýttur til dauða fyrir hjúskaparbrot sitt. Kærandi kvað mennina hafa tekið farsíma hans af honum. Mennirnir hafi komið aftur daginn eftir og sakað kæranda um njósnir fyrir sómölsk stjórnvöld og sagt honum að þeir hefðu fundið sönnunargögn í farsíma hans. Kærandi kvaðst hafa verið pyntaður í kjölfarið til að þvinga fram játningu hans en hann hafi svarað því að hann myndi ekki gangast við því að vera njósnari. Mennirnir hafi gefið kæranda tíma til að hugsa og komið aftur fimm til sjö dögum seinna. Þá hafi þeir krafist þess að kærandi segði sannleikann. Þeir hafi svo komið aftur tveimur dögum síðar og tilkynnt kæranda að hann myndi fara fyrir dóm. Kærandi kvaðst hins vegar hafa tekist að flýja kvöldið eftir á meðan bænastund hafi farið fram. Aðeins einn vörður hafi gætt fanganna og kærandi og samfangar hans hafi gripið tækifærið þegar hann hafi brugðið sér frá og tekist að flýja. Þeir hafi flúið inn í skóg og beðið þar áður en þeir hafi haldið áfram og komið að bænum Beledweyne. Kærandi hafi dvalið þar hjá móðurbróður sínum en fljótlega hafi frændi hans sagt kæranda að hann yrði að flýja borgina þar sem Al-Shabaab væri að leita að honum. Hann hafi gefið kæranda pening og miða til að fara til borgarinnar Kismayo. Kærandi hafi dvalið í Kismayo í tvo daga en þá hafi honum verið sagt að Al-Shabaab væri ennþá að leita að honum svo hann hafi flúið til Naíróbí í Keníu. Þar hafi bróðir kæranda haft samband við hann, sent honum pening og sagt honum að fara til Kanada. Kærandi hafi síðan komist til Evrópu með aðstoð smyglara.

Hinn 8. júní 2023 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda í tengslum við framangreinda atburði sem hann kveður hafa leitt til flótta síns, m.a. hvar þeir hefðu átt sér stað, hvers vegna meðlimir Al-Shabaab hafi þekkt kæranda, hvernig kæranda hafi tekist að flýja úr fangelsinu og hvernig kærandi og frændi hans hefðu frétt af því að meðlimir samtakanna væru á eftir honum í Beledweyne og Kismayo. Kærunefnd barst tölvubréf frá kæranda 19. júní 2023 þar sem fram kom að hann og kærasta hans hefðu verið handtekin í [...] í Hiiraan héraði í maí 2022 og að fangelsið hafi verið staðsett í sama bæ. Kærandi kvað meðlimi Al-Shabaab hafa barið sig í fangelsinu, m.a. með byssum og kylfum, auk þess sem þeir hafi sparkað í sig. Sími kæranda hafi verið tekinn í fangelsinu svo hann hafi ekki náð myndum af áverkunum. Varðandi flótta hans úr fangelsinu þá kvað kærandi fangaverðina yfirleitt hafa hleypt föngunum út úr klefunum sínum á meðan bænastund hafi farið fram og þannig hafi honum tekist að flýja. Varðandi það hvernig frændi kæranda í Beledweyne hafi frétt af því að Al-Shabaab væri á eftir honum þá kvað kærandi frænda sinn hafa frétt af því í ljósi þess að hann hafi farið beint heim til hans eftir að hafa flúið úr fangelsinu. Þá kvað kærandi frænda sinn í Kismayo hafa frétt af því að Al-Shabaab væri að leita að kæranda þar sem frændi hans í Beledweyne hafi upplýst hann um að kærandi hafi flúið fangelsið í [...]. Þá óskaði kærunefnd eftir nánari upplýsingum um það hvers vegna Al-Shabaab hafi talið kæranda vera njósnara fyrir sómölsk stjórnvöld eftir að hafa skoðað farsíma hans. Kærandi svaraði því að ekkert í síma hans hafi gefið slíkt til kynna heldur hafi meðlimir samtakanna einfaldlega túlkað það sjálfir út frá sinni hugmyndafræði.

Að mati kærunefndar er ekki fullt samræmi í framangreindri frásögn kæranda. Horfir nefndin m.a. til þess að kærandi kveðst hafa flúið fangelsið í [...] og dvalist í skógi áður en hann hafi komið að bænum Beledweyne. Samkvæmt landakorti er Beledweyne hins vegar í 144 kílómetra fjarlægð frá [...] eða í 29 klst. göngufjarlægð. Dregur það úr trúverðugleika frásagnar kæranda. Þá var kærandi spurður í viðtali hjá Útlendingastofnun hvort honum hafi verið haldið föngnum lengi af hálfu Al-Shabaab og svaraði hann því afdráttarlaust að honum hafi verið haldið föngnum í 12 daga. Þegar hann lýsti dvöl sinni í fangelsinu síðar í viðtalinu bar frásögn hans hins vegar með sér að hann hafi ekki vitað tímalengdina og nefndi hann einnig tíu daga. Þá veitti kærandi ekki skýringu á því hvernig frændi hans í Beledweyne hafi frétt af því að Al-Shabaab væri að leita hans. Enn fremur veitti hann ekki skýringu á því hvernig hann, eða frændi hans í Kismayo, hafi frétt af því að Al-Shabaab væri ennþá að leita hans þar. Dregur það úr trúverðugleika frásagnar kæranda að Al-Shabaab hafi verið á eftir honum. Þá kvað kærandi þá meðlimi Al-Shabaab sem hafi handtekið hann og kærustu hans hafa þekkt þau en hann svaraði ekki hvernig eða hvers vegna þeir hafi þekkt þau. Þá verður í ljósi upplýsinga um heimaríki kæranda, einkum þau svæði þar sem ítök Al-Shabaab eru hvað mest, að telja ólíklegt að kærandi hefði getað ferðast um langan veg eftir vegum landsins án þess að vera handtekinn á nýjan leik af Al-Shabaab væri hans leitað sérstaklega af samtökunum. Er það því mat kærunefndar að frásögn kæranda af því að hann hafi verið handtekinn af meðlimum samtakanna Al-Shabaab og að þeir leiti hans nú sé í heild sinni ótrúverðug og verður hún því ekki lögð til grundvallar.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu Al-Shabaab í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Þá hefur kærandi ekki borið fyrir sig að hafa sætt eða að eiga á hættu að sæta ofsóknum af öðrum ástæðum er fram koma í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar sú frásögn kæranda að hann sé í sérstakri hættu í heimaríki hans vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab sem rekja megi til þess að hann hafi verið sakaður um hjúskaparbrot. Við meðferð málsins hefur verið lagt til grundvallar að kærandi komi frá bænum [...] í Hiiraan umdæmi í Mið-Sómalíu. Samkvæmt skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér er almennt öryggisástand á heimasvæði kæranda ekki gott. Í skýrslu EUAA frá 23. febrúar 2023 kemur fram að Al-Shabaab stjórni stórum hluta Hirshabelle fylkis, sem Hiiraan umdæmi tilheyrir, þá einkum dreifbýlli svæðum og stjórni umferð um helstu vegi svæðisins sem hafi gert það að verkum að vegirnir séu í raun ófærir þeim sem ekki styðji Al-Shabaab. Í skýrslunni kemur fram að sómalskar hersveitir og Al-Shabaab hafi síðustu mánuði barist um yfirráð yfir landssvæðum Hirshabelle fylkis. Samkvæmt upplýsingum ACLED um stöðuna í Sómalíu í apríl og maí 2023 er Hiiraan umdæmi skjálftamiðja átakanna. Líkt og fram hefur komið bera heimildir með sér að Al-Shabaab fari með yfirráð yfir [...], heimabæ kæranda, um þessar mundir. Samkvæmt skýrslu Acaps jók Al-Shabaab notkun sína á sprengjum sem ekki gera greinarmun á skotmörkum um 49% milli áranna 2021 og 2022. Dauðsföll óbreyttra borgara vegna slíkra sprengjuárása hafi farið úr 16 í desember 2022 yfir í 237 í febrúar 2023. Héröðin sem hafi orðið verst úti séu Baidoa, Banadir, Belet Weyne, Galmudug, Hirshabelle, og Mudug. Samkvæmt skýrslunni hafi árásir Al-Shabaab gagnvart óbreyttum borgurum aukist um 366% í Hiiraan umdæmi milli áranna 2021 og 2022.

Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá því í september 2022 kemur fram að þeir einstaklingar sem komi frá svæðum sem séu undir stjórn Al-Shabaab eða svæðum þar sem mikil átök ríkja á milli Al-Shabaab og sómalskra öryggissveita séu í hvað mestri hættu á að lenda í aðstæðum sem falli undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra landaupplýsinga um ástandið í [...] og þess sem rakið er að framan er það mat kærunefndar að óvarlegt sé annað en að telja að raunhæf ástæða sé til að ætla að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum á fyrrgreindu landsvæði í Sómalíu þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hans þar falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því að kærandi uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Mat á möguleika á flutningi innanlands

Í 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga segir að ef útlendingur getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði getur verið að 1. og 2. mgr. eigi ekki við í þeim tilvikum og að hann teljist ekki flóttamaður. Niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á atvinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).

Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kæranda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að hann flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur hans þangað skapi hættu á að kærandi verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess að lífsviðurværi einstaklings verði verra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.

Líkt og fram hefur komið kveðst kærandi fæddur og uppalinn í [...] í Hiiraan umdæmi í Mið-Sómalíu. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar að aðstæður kæranda á því svæði falli undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt ríki til að endursenda ekki einstaklinga til Mið-Sómalíu eða suðurhluta landsins, einkum vegna hernaðaraðgerða af hálfu vopnaðra hópa sem þar hafi átt sér stað lengi, sbr. skýrsla stofnunarinnar frá 2016, UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I). Í leiðbeiningum stofnunarinnar um mat á innri flutningi í Sómalíu frá 2022 er fjallað um mögulegan innri flutning til ákveðinna svæða í Sómalíu, s.s. Mógadisjú, Puntlands og Sómalílands. Flutningur þangað sé þó afar erfiður og almennt sé ekki sanngjarnt að ætlast til þess að einstaklingur setjist að annars staðar í Sómalíu nema ljóst sé að hann muni njóta stuðnings fjölskyldu sinnar eða ættbálkar. Þá séu aðstæður í flóttamannabúðum á svæðinu afar slæmar og hefur Mannréttindadómstóll Evrópu m.a. komist að því að þær nái því marki að teljast ómannúðlegar í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. dómur dómstólsins í máli Sufi og Elmi gegn Bretlandi nr. 8319/07 og 11449/07 frá 28. nóvember 2011. Þá hefur Flóttamannastofnun lagst gegn því að slíkar búðir teljist viðunandi aðstæður til innri flutnings.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að tilheyra Hawiye ættbálknum en samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Britannica er ættbálkurinn aðallega staðsettur í Mið- og Suður-Sómalíu. Í tölvubréfi kæranda, dags. 19. júní 2023, greindi kærandi frá því að fjölskylda hans, n.t.t. móðir og systkini, væri búsett í [...]. Líkt og fjallað er um í framangreindri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hafa ríki m.a. verið hvött til að endursenda einstaklinga ekki til Mið- og Suður-Sómalíu vegna öryggisástands á svæðinu og telur kærunefnd því ekki raunhæft að kærandi snúi þangað. Kærandi greindi frá því að eiga einn frænda í borginni Beledweyne, sem er höfuðborg Hiiraan umdæmis í Hirshabelle fylki, og annan í Kismayo, en samkvæmt landakorti eru borgirnar staðsettar í Mið- og Suður-Sómalíu. Þá bera heimildir með sér að öryggisástand í Kismayo sé viðkvæmt. Ekkert í gögnum málsins eða frásögn kæranda bendir til þess að hann hafi fjölskyldutengsl við aðra en framangreinda staði. Er það því mat kærunefndar að kærandi njóti ekki stuðnings fjölskyldu sinnar á öðrum stöðum í heimaríki sínu.

Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að ekki sé hægt með sanngirni að ætlast til þess að kærandi setjist að annars staðar í Sómalíu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að skilyrði 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um flutning innanlands séu ekki uppfyllt og telst kærandi því flóttamaður.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi eigi ekki möguleika á flutningi innanlands telst hann flóttamaður samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og á rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi samkvæmt 40. gr. laganna, enda er hann staddur hér á landi. Þá bendir ekkert til þess að hann falli undir útilokunarástæður 2. mgr. 40. gr. sömu laga. 

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að veita kæranda alþjóðlega vernd á Íslandi á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Kærandi telst flóttamaður samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og er veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 40. gr. sömu laga. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The appellant is a refugee according to Article 37(2) of the Act on Foreigners and is granted international protection according to Article 40(1) of the same law. The Directorate is instructed to issue the appellant a residence permit on the basis of Article 73 of the Act on Foreigners.

 

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

 

 

Sindri M. Stephensen                                                                   Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum