Hoppa yfir valmynd
6. september 2017 Utanríkisráðuneytið

Sextán milljónir barna og fjölskyldur þeirra í mikilli neyð vegna flóða

FlodsasiaunicefBarnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) áætlar að um 16 milljón börn og fjölskyldur þeirra þurfi á lífsnauðsynlegri hjálp að halda eftir mikil flóð af völdum monsúnrigninga í Suður-Asíu undanfarnar vikur. Milljónir fleiri eru í hættu að mati samtakanna. 

Í frétt íslensku landsnefndarinnar segir að frá því um miðan ágúst hafi að minnsta kosti 1288 manns látið lífið í miklum flóðum í Nepal, Indlandi og Bangladess og óttast sé að ástandið eigi enn eftir að versna.  Hundruð þúsunda heimila hafi skemmst eða eyðilagst og skólar séu á kafi í vatni. Um sé að ræða ein mestu flóð í Suður-Asíu í áratugi. 

"Flóðin hafa gengið yfir svæði sem eru viðkvæm fyrir og munu hafa langvarandi áhrif, meðal annars vegna eyðileggingar á uppskeru. Mörg svæði eru enn óaðgengileg þar sem vegir, brýr og flugvellir hafa eyðilagst í hamförunum," segir í fréttinni.

Heimsforeldrar hjálpa á flóðasvæðunum
"UNICEF er á staðnum og vinnur náið með ríkisstjórnum og samstarfsaðilum í Nepal, Indlandi og Bangladess við að veita neyðaraðstoð. Með hjálp  heimsforeldra hefur UNICEF náð að útvega hjálpargögn, meðal annars vatnshreinsitöflur, mat og teppi, og vinnur nú að því að setja á fót tímabundna kennsluaðstöðu þar sem þarf til þess að skólastarf raskist sem minnst.

Börn eru hvað viðkvæmust gagnvart náttúruhamförum sem þessum og mikilvægt að tryggja þeim nauðsynlega læknisaðstoð, næringu, ómengað drykkjarvatn og vernd. UNICEF leggur nú áherslu á að bregðast við brýnustu þörfum barnanna á svæðinu - tryggja hreint vatn og hreinlætisvörur til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma - auk þess sem starfsfólk vinnur að því að dreifa matvælum og koma á fót öruggum neyðarskýlum sem börn og fjölskyldur þeirra geta leitað til.
Aðstæður eru erfiðar og eyðileggingin mikil og þörf er á að auka neyðaraðgerðirnar," segir í frétt UNICEF.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum