Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Jóhanna aðstoðar Lilju

Jóhanna Hreiðarsdóttir - mynd

Jóhanna Hreiðarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra. Hún hefur þegar hafið störf.

Jóhanna hefur yfirgripsmikla reynslu úr atvinnulífinu einkum á sviði ferðaþjónustu. Hún starfaði sem mannauðs- og gæðastjóri hjá Reykjavik Excursions í 9 ár og einnig sem rekstrarstjóri þjónustu og rekstrar í 3 ár.

Jóhanna er stjórnmálafræðingur, með B.A. gráðu frá Háskóla Íslands ásamt því að hafa stundað Msc. nám í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði og mannauðsstjórnun í sama skóla.

Hún hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, var stjórnarformaður RÚV frá 2020-2022, situr í útflutnings- og markaðsráði frá 2019, stjórnarformaður Lánatryggingasjóð kvenna 2014-2017 og hefur setið í nefndum og ráðum hjá Reykjavíkurborg og fyrir ýmis félaga- og íþróttasamtök.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum