Hoppa yfir valmynd
31. október 2012 Dómsmálaráðuneytið

Réttarheimildavefurinn á nýrri vefslóð með nýju útliti

Vefurinn rettarheimild.is, sem settur var á laggirnar árið 2001, hefur fengið nýtt útlit samhliða því að yfirskrift vefjarins hefur verið breytt í Úrskurðir og álit. Á vefnum birta ráðuneytin úrskurði sína og álit auk úrskurða kærunefnda og dóma Félagsdóms. Aðalslóð vefjarins verður nú urskurdir.is, en hann verður áfram einnig aðgengilegur á slóðinni rettarheimild.is. Tilgangurinn er að bæta aðgengi og þjónustu.

Ný vefslóð og nýtt útlit, urskurdir.is.
Ný vefslóð og nýtt útlit, urskurdir.is.

Vefurinn hefur einnig verið færður yfir í nýja útgáfu af eplica-vefumsjónarkerfinu sem m.a. býður upp á öflugri leit og betra aðgengi en eldri útgáfan. Hvert ráðuneyti sér um sitt efni á vefnum en innanríkisráðuneytið hefur heildarumsjón með honum. Við opnun árið 2001 var vefnum ætlað að vera heildstæð yfirlitssíða yfir helstu lagagögn og réttarheimildir en miklar breytingar hafa orðið síðan á miðlun slíkra gagna og reynslan sýnir að vefurinn hefur frá upphafi eingöngu verið nýttur fyrir úrskurði, álit og dóma Félagsdóms. Því var ákveðið að nota nýja lénið, urskurdir.is, fyrir vefinn til framtíðar.

Mannanafnaskráin sem áður var vistuð á réttarheimildavefnum hefur nú verið flutt yfir til Þjóðskrár Íslands á vefinn island.is og var opnuð þar á sama tíma og nýi úrskurðavefurinn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum