Hoppa yfir valmynd
9. september 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 109/2021 Endurupptökubeiðni Úrskurður 9. september 2021

Mál nr. 109/2021                  Endurupptökubeiðni

                                                Eiginnafn:     Cleopatra (kvk.)

 

 

Mannanafnanefnd hefur borist beiðni, dags. 24. ágúst sl., þar sem óskað er eftir endurupptöku máls nr. 38/2019 Cleópatra.

Með úrskurði mannanafnanefndar frá 8. maí 2019 í máli nr. 38/2019 var umsókn um eiginnafnið Cleópatra (kvk.) hafnað. Niðurstaða nefndarinnar var að nafnið uppfyllti ekki skilyrði 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn, nr. 45/1996, sem kveður á um að ritháttur nýs eiginnafns skuli vera í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Í endurupptökubeiðninni er bent á að mannanafnanefnd hafi þann 1. júlí sl. samþykkt breytingar á vinnulagsreglum nefndarinnar og er óskað eftir að nefndin taki aftur fyrir umsókn um fyrrgreint nafn í ljósi breytinganna. Enn fremur er óskað eftir því að ritháttur nafnsins verði með öðrum hætti en í upphaflegri umsókn, þ.e. Cleopatra í stað Cleópatra.

Þar sem ljóst er að umræddar breytingar á vinnulagsreglum mannanafnanefndar við túlkun á hefð hafa þýðingu í málinu fellst nefndin á að taka það upp á ný og fylgir nýr úrskurður í málinu hér á eftir sem fengið hefur málsnúmerið 109/2021.

Hinn 9. september 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 109/2021:

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Cleopatra (kvk.) uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu Cleopötru, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú. Nafnið er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslenskt máls þar sem bókstafurinn c er ekki í íslenska stafrófinu. Er því aðeins hægt að fallast á ritháttinn Cleopatra að hann teljist hafa unnið sér hefð. Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð: 

  1.  Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
    5. Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

     

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

     

  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

     

  4. Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.


Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera tvær konur, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna, sbr. 2. lið þeirra, eiginnafnið Cleopatra í þjóðskrá, sú eldri fædd 1984, og ein kona eiginnafnið Cleópatra, fædd 1975. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Rithátturinn uppfyllir því ekki skilyrði 1. liðar vinnulagsreglnanna. Eiginnafnið Cleopatra er af erlendum uppruna, úr grísku Kleopatra, en rithátturinn Cleopatra er víða notaður. Nafnið telst því uppfylla skilyrði 4. liðar vinnulagsreglnanna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Cleopatra (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttur nafnsins Kleópatra (kvk.).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum