Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 172/2021 Endurupptökubeiðni Úrskurður 16. desember 2021

Mál nr. 172/2021                  Endurupptökubeiðni

                                                Eiginnafn:     Pírati (kk.)

 

 

Mannanafnanefnd hefur borist beiðni, dags. 24. nóvember sl., þar sem óskað er eftir endurupptöku máls nr. 18/2018 Pírati. Í því máli var sótt um millinafnið Pírati og komst mannanafnanefnd að þeirri niðurstöðu að nafnið uppfyllti ekki skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þar sem það væri ekki leitt af íslenskum orðstofni og hefði nefnifallsendingu. Í endurupptökubeiðninni er óskað eftir því að beiðnin verði tekin fyrir að nýju en þó með þeirri breytingu að óskað er eftir að nafnið verði fært á mannanafnaskrá sem eiginnafn. Að mati mannanafnanefndar stendur ekkert í vegi fyrir því verða við þessari beiðni. Nýr úrskurður í málinu fylgir hér á eftir og hefur hann fengið málsnúmerið 172/2021:

Hinn 16. desember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 172/2021:

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Pírati (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Pírata, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Pírati (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum