Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2010 Dómsmálaráðuneytið

Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram 6. mars 2010

Með vísun til 1. gr. laga nr. 4/2010, sbr. 26. gr.stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 hefur Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra í samráði við landskjörstjórn ákveðið að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram hinn 6. mars 2010 um framtíðargildi laga nr. 1/2010 um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. Alþingi samþykkti lög nr. 1/2010 en forseti synjaði þeim staðfestingar. Því ber að leggja lögin undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu.

Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa þeir kjósendur sem hafa kosningarrétt til Alþingis. Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram á sömu kjörstöðum og notast er við í almennum kosningum. Munu einstök sveitarfélög auglýsa nánar um kjörstaðina samkvæmt venju skömmu fyrir atkvæðagreiðsluna, m.a. hvenær þeir eru opnir, hvar þeir eru, hvernig er skipt í kjördeildir o.fl.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 28. janúar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 28. janúar 2010, bæði innan lands og utan. Kjósanda sem ekki getur kosið á kjördag, er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar frá og með þeim degi til kjördags. Hægt er að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á erlendri grundu hefst sama dag á vegum utanríkisráðuneytisins sem mun kynna fyrirkomulag þar að lútandi.

Þá er kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða er vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlaða, heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um vistmann fangelsis. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Einnig er kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans.

Sjá auglýsingu dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um þjóðaratkvæðagreiðslu (pdf)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum