Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2021 Utanríkisráðuneytið

UNICEF veitir neyðaraðstoð á St. Vincent eyju

Ljósmynd: UNICEF - mynd

„Okkar helstu áhyggjur eru ekki einungis öryggi þeirra fimm þúsund barna og fjölskyldna sem búa á hættusvæðinu heldur einnig velferð allra íbúa eyjunnar,“ sagði Dr. Aloys Kamuragiye, fulltrúi UNICEF fyrir austur-Karíbahaf. Þúsundir barna hafa þurft að yfirgefa heimili sín á eyjunni St. Vincent í Karíbahafi eftir að sprengigos hófst í eldfjallinu La Soufriere fyrir helgi. Eldgosinu fylgdi mikið öskufall sem þekur nú stóran hluta eyjunnar. Eldfjallið gaus síðast árið 1979.

UNICEF og samstarfsaðilar hafa nú þegar náð að veita 4.800 börnum á hættusvæði eyjunnar aðstoð, meðal annars komið þeim í öruggt skjól í neyðarskýlum og tryggt aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu. Búist er við því að meira en þúsund fjölskyldur hafi misst lífsviðurværi sín og þurfi tafarlausa fjárhagsaðstoð.

Að mati Kamuragieye þarf að auka neyðaraðgerðir á svæðinu til þess að ná til allra þeirra sem þurfa á stuðningi að halda. Hættan á frekari sprengigosum er enn fyrir hendi.

UNICEF minnir á að heimsforeldrar geri samtökunum kleift að bregðast strax við þegar neyðarástand skapast vegna náttúruhamfara og kveðst halda áfram að veita íbúum St. Vincent aðstoð og tryggja öryggi þeirra barna sem eru nú í hættu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum