Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2022 Utanríkisráðuneytið

Catherine Russell nýr framkvæmdastjóri UNICEF

Cathrine Russell framkvæmdastjóri UNICEF - mynd

„Það er mikill heiður og forréttindi að ganga til liðs við UNICEF og leggja mitt af mörkum til að leiða ótrúlegt starf stofnunarinnar fyrir börn um allan heim á svo mikilvægum tímapunkti í sögunni,“ segir Catherine Russell, nýr framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hún er fjórða konan til að stýra stofnuninni í 75 ára sögu hennar.

Tilkynnt var um ráðningu Russell í desember síðastliðnum en hún tók formlega við starfinu á dögunum og tekur við af Henriettu Fore sem gegnt hafði starfinu frá ársbyrjun 2018 við góðan orðstír. Fore hafði beðist lausnar úr embætti í ágúst síðastliðnum af persónulegum ástæðum vegna veikinda eiginmanns hennar.

Samkvæmt frétt frá landsnefnd UNICEF á Íslandi hefur Catherine Russell  víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum í bandaríska stjórnkerfinu og kemur með mikla sérfræðiþekkingu inn í starf UNICEF. Frá 2020 til 2022 var hún aðstoðarmaður forseta Bandaríkjanna og skrifstofustjóri starfsmannamála forsetans í Hvíta húsinu. Þar áður hafði hún frá árinu 2013 til 2017 verið sendiherra fyrir Global Women‘s Issues í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna. Í þeirri stöðu bar hún ábyrgð á að innleiða hagsmuna-, réttinda- og baráttumál kvenna í alla þætti utanríkisstefnu Bandaríkjanna, var fulltrúi Bandaríkjanna í yfir 45 löndum, vann með erlendum stjórnvöldum, alþjóðasamtökum og félögum í almannaþágu. Þá var hún í forsvari fyrir innleiðingu framtaksins „U.S Global Strategy to Empower Adolescent Girls“ sem þykir mikið tímamótastefnumál.

Þar áður hafði hún starfað sem staðgengill aðstoðarmanns Bandaríkjaforseta í tíð Baracks Obama, yfirráðgjafi utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings í alþjóðlegum málefnum kvenna svo fátt eitt sé nefnt.

„Á tímum sem þessum þar sem milljónir barna standa frammi fyrir því að takast á við afleiðingar heimsfaraldurs Covid og annarra erfiðleika er UNICEF í fremstu röð til að verja réttindi þeirra og framtíð. Ég hlakka mikið til vinnunnar sem framundan er,“ segir Russell í tilkynningu frá UNICEF.

Catherine Russell er áttundi framkvæmdastjóri í sögu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna og býður landsnefnd UNICEF á Íslandi hana hjartanlega velkomna til starfa. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum