Hoppa yfir valmynd
2. október 2009 Innviðaráðuneytið

Undirrituðu vegvísi að gerð hagstjórnarsamnings

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu í gær vegvísi að gerð hagstjórnarsamnings. Tilgangur hans er að tryggja samráð ríkis og sveitarfélaga á sviði opinberra fjármála.

Vegvísir um gerð hagstjórnarsamnings ríkis og sveitarfélaga undirritaður.
Vegvísir um gerð hagstjórnarsamnings ríkis og sveitarfélaga undirritaður.

Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Karl Björnsson, framkvæmdastjóri þess undirrituðu vegvísinn við lok fyrri dags fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ráðstefnunni lýkur í dag.

Í vegvísinum er tekið fram í upphafi að aðilar séu sammála um að líta þurfi á fjármál opinberra aðila sem eina heild og nauðsynlegt sé að þeir sem ábyrgir séu fyrir þeim hafi með sér samráð og samstarf. Taldir eru upp nokkrir þættir sem litið verður á sem leiðarljós í þessu samstarfi. Meðal þeirra er að eiga samstarf um að áætlanir um tekjur og útgjöld ríkis og sveitarfélaga taki mið af markmiðum um þjóðhagslegan stöðugleika, að leita sameiginlegra leiða til að tryggja að afkoma ríkis og sveitarfélaga verði í samræmi við þau markmið um jöfnuð í fjármálum hins opinbera og að leitað verði leiða sem tryggi að öll lagafrumvörp og reglugerðir sem geta haft áhrif á útgjöld ríkissjóðs og/eða sveitarsjóða verði kostnaðarmetin áður en kynning fer fram í ríkisstjórn og frumvarp er lagt fram á Alþingi eða reglugerð birt í Stjórnartíðindum.

Til að ná markmiðunum stefna aðilar að gerð hagstjórnarsamnings til eins árs í senn. Í honum verði meðal annars skilgreindar aðgerðir í þágu samræmdrar opinberrar hagstjórnar. Jónsmessunefnd og samráðsnefnd um efnahagsmál skulu vinna að undirbúningi hagstjórnarsamningsins ár hvert.

Til að hleypa verkefninu af stað samþykkja þessir þrír aðilar að ráða sérfræðing til verkefnisins í þrjá til fjóra mánuði og skiptist kostnaðurinn jafnt á milli þeirra.

Vegvísir um gerð hagstjórnarsamnings ríkis og sveitarfélaga undirritaður.
Vegvísir að hagstjórnarsamningi undirritaður. Frá vinstri: Steingrímur J. Sigfússon, Halldór Halldórsson, Kristján L. Möller og Karl Björnsson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum