Hoppa yfir valmynd
9. desember 2020 Utanríkisráðuneytið

Spilling má ekki trufla bataferlið eftir heimsfaraldurinn

Ljósmynd frá Namibíu: Philip Schuler - mynd

„Spilling hefur þrifist í heimsfaraldrinum og koma verður í veg fyrir að þeir sem ástunda slíka iðju geti hagnýtt sér dreifingu nýju bóluefnanna,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Í dag, 9. desember, er alþjóðadagur gegn spillingu.

Í ávarpi í tilefni dagsins bendir Guterres á mikilvægi þess að tryggja að spillingaröfl eða óprúttnir aðilar hamli ekki batanum eftir COVID-19 heimsfaraldurinn. Hann segir stjórnvöld hvarvetna í heiminum verja stórfé til þess að koma efnahagslífinu á réttan kjöl og veita neyðarstuðning en varar við hættunni á mútum og illa fengnum gróða á komandi vikum í aðdraganda bólusetninga gegn farsóttinni.

„Við getum ekki horft upp á að sjóðum og björgunarúrræðum sé sveigt af réttri stefnu … batinn verður að fela sér aðgerðir til að koma í veg fyrir spillingu og mútur,“ segir Guterres.

Stofnað var til alþjóðadags gegn spillingu af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2003 sem hluta af mikilvægri vitundarvakning um spillingu og leiðir til þess að berjast gegn henni, á grundvelli Samnings gegn spillingu, sem þá var samþykktur. Alþingi samþykkti aðild Íslands að samningnum árið 2010 og hann gekk í gildi hér á landi 1. mars ári síðar.

Þema alþjóðadagsins í ár er „Bati með heilindum“ og vísar til  þess að nú þegar heimurinn undirbýr sig undir bataferli í kjölfar heimsfaraldurs sé það aðeins gerlegt með heilindum og ábyrgð.

Anti-Corruption Day/ OECD

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum