Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 325/2019 - Úrskurður

.

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 325/2019

Miðvikudaginn 6. nóvember 2019

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Ásmundur Helgason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. ágúst 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 22. maí 2019 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2018.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2018 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð X kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2019.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. ágúst 2019. Með bréfi, dags. 14. ágúst 2019, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 28. ágúst 2019, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. ágúst 2019. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Með kæru fylgdi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2019, um niðurstöðu endurreiknings og uppgjör tekjutengdra bóta á árinu 2018. Enginn rökstuðningur fylgdi kæru en af gögnum málsins má ráða að kærandi óski endurskoðunar á framangreindri ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2018.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum. Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafa verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2018 hafi kærandi verið með ellilífeyri og heimilisuppbót allt árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til X kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2019 vegna tekjuársins 2018 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun þann 17. janúar 2018. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að á árinu 2018 væru lífeyrissjóðstekjur kæranda X kr., vextir og verðbætur X kr. og arður X kr. Kæranda hafi verið greitt samkvæmt tekjuáætluninni út mars 2018.

Við reglulegt eftirlit Tryggingastofnunar í […] hafi komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra. Tryggingastofnun hafi útbúið nýja tillögu að tekjuáætlun á grundvelli upplýsinga úr staðgreiðsluskrá og hafi kæranda verið sent bréf þann X 2018 þar sem henni hafi verið tilkynnt um nýja tillögu að tekjuáætlun. Í því sama bréfi hafi henni verið tilkynnt um að búið væri að áætla á hana kröfu, að fjárhæð X kr. vegna ofgreiddra bóta á tímabilinu X til X 2018.

Í hinni nýju tillögu Tryggingastofnunar að tekjuáætlun kæranda hafi verið gert ráð fyrir því að hún hefði X kr. í lífeyrissjóðstekjur en sömu vaxta- og arðstekjur. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda vegna þessarar tekjuáætlunar og hafi kærandi fengið greitt á grundvelli hennar frá X til X 2019.

Við reglulegt eftirlit Tryggingastofnunar í […] hafi komið í ljós að aftur væri misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá. Tryggingastofnun hafi útbúið nýja tillögu að tekjuáætlun á grundvelli upplýsinga úr staðgreiðsluskrá og hafi kæranda verið sent bréf þann X 2018 þar sem henni hafi verið tilkynnt um hina nýju tillögu að tekjuáætlun. Í því sama bréfi hafi kæranda verið tilkynnt um að búið væri að áætla á hana kröfu, að fjárhæð X kr. vegna ofgreiddra bóta á tímabilinu X til X 2018.

Í hinni nýju tillögu Tryggingastofnunar að tekjuáætlun hafi verið gert ráð fyrir því að kærandi hefði X kr. í lífeyrissjóðstekjur og aftur sömu vaxta- og arðstekjur og ætti því engan rétt á greiðslu bóta það sem eftir væri ársins.

Kærandi hafi skilaði inn nýrri tekjuáætlun þann X 2018 þar sem lífeyrissjóðstekjur hafi verið lækkaðar í X kr. en að öðru leyti hafi hún verið óbreytt. Tryggingastofnun hafi samþykkt þá áætlun með bréfi, dags. X 2018. Ekki hafi orðið breytingar á greiðslum kæranda og átti hún engan rétt á bótum áfram.

Í maí 2019 hafi árið 2018 verið gert upp og hafi þá komið í ljós að kærandi hafi verið með X kr. í lífeyrissjóðstekjur, X kr. í vexti og verðbætur og X kr. í arð. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2018 hafi verið sú að kærandi hafi ekki átt rétt á neinum bótum árið 2018.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hefur einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2018 hafi verið sú að kærandi hafi ekki átt rétt á bótum á árinu 2018. Áður myndaðar kröfur vegna ársins 2018 hafi samtals verið X kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2018.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun á árinu 2018. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. þeirra laga ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Í 23. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um útreikning ellilífeyris en þar segir að ellilífeyrir skuli lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 16. gr. laganna, uns lífeyririnn fellur niður. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 17. janúar 2018, var kæranda send tekjuáætlun vegna ársins 2018 þar sem gert var ráð fyrir X kr. í lífeyrissjóðstekjur, X kr. í vexti og verðbætur og X kr. í arð. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út miðað við hana. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra í […] kom í ljós að lífeyrissjóðstekjur kæranda reyndust vera hærri en gert hafi verið ráð fyrir í tekjuáætlun í upphafi ársins. Var í kjölfarið útbúin ný áætlun, dags. X 2018, þar sem gert var ráð fyrir greiðslum frá lífeyrissjóði að fjárhæð X kr. og sömu fjármagnstekjum og áður. Þá var kærandi einnig upplýst um áætlaða kröfu að fjárhæð X kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra í […] kom í ljós að lífeyrissjóðstekjur kæranda reyndust enn á ný hærri en fyrri tekjuáætlun gerði ráð fyrir. Í kjölfarið var útbúin ný tekjuáætlun, dags. X 2019, þar sem gert var ráð fyrir greiðslum frá lífeyrissjóði að fjárhæð X kr. og sömu fjármagnstekjum og áður. Þá var kærandi jafnframt upplýst um að áætlaða kröfu að fjárhæð X kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta fyrir tímabilið X til og með X. Kærandi gerði ekki athugasemd við þessa nýju tekjuáætlun Tryggingastofnunar fyrr en með nýrri áætlun, dags. X 2018, þar sem hún lækkaði lífeyrissjóðstekjurnar í X kr. og samþykkti Tryggingastofnun þá áætlun. Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2018 reyndust lífeyrissjóðstekjur kæranda vera X kr. og samtals X kr. í fjármagnstekjur. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins leiddi í ljós að kærandi hafi ekki átt rétt á neinum greiðslum frá Tryggingastofnun á árinu 2018.

Samkvæmt framangreindu reyndust tekjur kæranda vera hærri á árinu 2018 en gert hafði verið ráð fyrir. Um var að ræða lífeyrissjóðstekjur, auk fjármagnstekna. Lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofn sem hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Fjármagnstekjur eru einnig tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og C-lið 7. gr. laga um tekjuskatt.

Ástæðu þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er að rekja til þess að umræddir tekjustofnar voru vanáætlaður í tekjuáætlun. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2018.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2018, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum