Hoppa yfir valmynd
5. september 2022 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 117/2022 Úrskurður 5. september 2022

Mál nr. 117/2022                  Millinafn:       Frostberg

 

 

 

Hinn 5. september 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 117/2022 en erindið barst nefndinni 2. september. 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

 

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Millinafnið Frostberg er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla eða kvenna. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn. Nafnið Frostberg uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Frostberg er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum