Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2020 Utanríkisráðuneytið

Mikil söluaukning í „Sönnum gjöfum“ UNICEF

Ein vatnshreinsitafla getur breytt fimm lítrum af sýktu vatni í drykkjarhæft vatn. Ljósmynd: UNICEF - mynd

„Við erum ótrúlega þakklát fyrir þann hlýhug sem Íslendingar hafa sýnt okkur og þeim börnum í neyð sem njóta góðs af Sönnum gjöfum. Sala Sannra gjafa hefur aukist mjög mikið á milli ára og við finnum fyrir miklum meðbyr með þessum gjöfum. Þetta eru gjafir sem gera fólki ekki eingöngu kleift að láta gott af sér leiða heldur eru líka góðar við umhverfið og skapa ekki óþarfa sóun eða mengun. Allt í takt við aukna umhverfisverndarvitund fólks. Það var því ótrúlega gleðilegt hvað salan gekk vel fyrir jólin og magnað að litla Ísland geti lagt svo mikið að mörkum fyrir börn í neyð,“ segir Esther Hallsdóttir verkefnisstýra Sannra gjafa hjá UNICEF.

Vatnshreinsitöflur voru vinsæl gjöf á síðasta en ein slík tafla getur breytt fimm lítrum af óhreinu og sýktu vatni í hreint og drykkjarhæft vatn á aðeins nokkrum mínútum. Með kaupum á Sönnum gjöfum sendu Íslendingar rúmlega 6 milljónir slíkar töflur út þangað sem þörfin og neyðin er mest. Fyrir þann fjölda vatnshreinsitafla má hreinsa rúmlega 30 milljónir lítra af vatni sem jafngildir vatnsmagninu sem þarf til að fylla Laugardalslaug rúmlega ellefu sinnum. Í gegnum sannar gjafir keyptir 105 þúsund skammtar af bóluefni gegn mislingum, mænusótt og stífkrampa og 146 þúsund skammtar af jarðhnetumauki fyrir vannærð börn. Að mati UNICEF tryggðu Íslendingar 2.324 vannærðum börnum fullan bata með kaupum á jarðhnetumauki, miðað við að hvert barn þurfi þrjá poka af jarðhnetumauki.

UNICEF segir í frétt að þetta sé aðeins brot af þeim neyðargögnum sem Íslendingar keyptu í gegnum Sannar gjafir á síðasta ári. Ótalin séu tæplega þrjú þúsund hlý teppi og rúmlega 1.600 sett af hlýjum vetrarfatnaði fyrir börn.

„Ljóst er að sífellt fleiri horfa til þessara umhverfisvænu og umhyggjusömu tækifærisgjafa enda jókst salan um 20 prósent milli ára,“ segir í frétt UNICEF

Vefur Sannra gjafa 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum