Hoppa yfir valmynd
11. júní 2008 Innviðaráðuneytið

Reglur um ráðstöfun 1.400 milljóna króna aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga árið 2008

Samgönguráðherra hefur gefið út reglur um ráðstöfun 1.400 milljóna króna aukaframlags til sveitarfélaga árið 2008. Er framlaginu ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir viðbótarframlag vegna erfiðra ytri aðstæðna.

Samgönguráðherra hefur gefið út reglur um ráðstöfun 1.400 milljóna króna aukaframlags til sveitarfélaga árið 2008. Er framlaginu ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir viðbótarframlag vegna erfiðra ytri aðstæðna.

Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga gefið út reglur um ráðstöfun aukaframlagsins til sveitarfélaga á árinu 2008. Einungis kemur til úthlutunar framlags samkvæmt reglunum ef heimild sveitarfélags til útsvarsálagningar fyrir tekjuárið 2008 er fullnýtt af sveitarstjórn.

Samkvæmt reglunum skiptist framlagið sem hér segir.

Framlag vegna íbúafækkunar (2. gr.)

Varið skal 400 milljónum króna til sveitarfélaga þar sem íbúum fækkaði árin 2003-2007. Eingungis kemur til úthlutunar framlags ef hlutfallsleg fækkun íbúa hefur verið umfram 1,5% á tímabilinu. Þó skal aðeins greiða framlag til sveitarfélaga þar sem fækkun íbúa er umfram níu á tímabilinu.

Framlag vegna þróunar útsvarsstofns (3. gr.)

Varið skal 400 milljónum króna til sveitarfélaga þar sem hlutfallsleg þróun útsvarsstofns milli áranna 2002 og 2007 er lægri en heildarhækkun útsvarsstofns allra sveitarfélaga fyrir sama tímabil. Einungis kemur til úthlutunar framlags hafi sveitarfélag ekki fylgt íbúaþróun Reykjavíkurborgar á sama tímabili.

Framlag vegna íbúaþróunar (4. gr.)

Varið skal 350 milljónum króna til sveitarfélaga sem ekki hafa fylgt þróun Reykjavíkurborgar hvað íbúafjölda varðar árin 2003-2007. Einungis kemur til úthlutunar framlags hafi hlutfallsleg þróun útsvarsstofns í sveitarfélaginu milli áranna 2002 og 2007 verið lægri en heildarhækkun útsvarsstofns allra sveitarfélaga á tímabilinu.

Framlag til sameinaðra sveitarfélaga vegna þróunar útsvarsstofns o.fl. (5. gr.)

Varið skal 175 milljónum króna til sveitarfélaga þar sem hlutfallsleg þróun útsvarsstofns er með sama hætti og í 3. gr. og íbúaþróun með sama hætti og í 4. gr. Á grundvelli sömu forsendna skal auk þess varið 75 milljónum króna til sveitarfélaga þar sem tekið er tillit til sérstakrar útgjaldaþarfar sveitarfélaga sem halda þurfa úti þjónustu á fleiri en einum þéttbýlisstað innan sveitarfélagsins. Við útreikning framlagsins koma til greina sveitarfélög sem hafa sameinast frá og með árinu 1984.

Sjá nánar:

Reglur um ráðstöfun 1.400 milljóna króna aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2008, nr. 526/2008.

Viljayfirlýsing ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 22. mars 2007.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum