Hoppa yfir valmynd
20. maí 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 68/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 68/2021

Fimmtudaginn 20. maí 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. febrúar 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. febrúar 2021, um að synja umsókn fyrirtækisins um greiðslur á grundvelli laga nr. 24/2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 5. janúar 2021, sótti kærandi um greiðslur frá Vinnumálastofnun á grundvelli laga nr. 24/2020 um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir vegna starfsmanns fyrirtækisins. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. febrúar 2021, á þeirri forsendu að skilyrði um sóttkví væri ekki uppfyllt.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. febrúar 2021. Með bréfi, dags. 16. mars 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 7. apríl 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. apríl 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi hafnað greiðslu vegna ákveðins starfsmanns fyrirtækisins. Kærandi skilji ekki hvers vegna þar sem starfsmaðurinn hafi verið með Covid-19.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur vegna tiltekins starfsmanns fyrirtækisins. Með umsókn kæranda hafi ekki fylgt yfirlýsing frá Embætti landlæknis um sóttkví til að sporna við útbreiðslu Covid-19, þ.e. vottorð frá Embætti landlæknis vottað af sóttvarnalækni. Auk þess hafi starfsmaður kæranda ekki verið skráð í sóttkví samkvæmt beinum fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda samkvæmt skráningu landlæknis heldur hafi kærandi samkvæmt skráningu landlæknis farið beint í einangrun þann 26. október 2020. Í framhaldinu hafi verið óskað eftir frekari skýringum frá kæranda. Þann 28. janúar 2021 hafi kærandi sent vottorð vegna starfsmanns þeirra þar sem fram hafi komið að starfsmaðurinn hafi verið undir eftirliti á Landspítalanum vegna Covid-19 frá 26. október til 14. nóvember 2020. Vottorðið staðfesti einangrun vegna Covid-19 sýkingar en ekki að viðkomandi starfsmaður hafi sætt sóttkví samkvæmt beinum fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Kærandi hafi því ekki sætt sóttkví samkvæmt beinum fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Vert sé að taka fram að greiðslur stofnunarinnar á grundvelli laganna byggi á skráningu Embættis landlæknis á þeim dagsetningum sem einstaklingur sætir sóttkví. Það hafi verið niðurstaða Vinnumálastofnunar, með vísan til a. liðar 1. mgr. 5. gr. laga nr. 24/2020, að hafna umsókn kæranda, enda þurfi launamaður eða sjálfstætt starfandi einstaklingur að hafa sætt sóttkví til að eiga rétt á greiðslum. 

Vinnumálastofnun tekur fram að lög nr. 24/2020 taki til greiðslna til atvinnurekanda sem greitt hafa launamönnum, sem sæta sóttkví, laun. Enn fremur gildi lögin um greiðslur til launamanna sem sæta sóttkví en fá ekki greidd laun frá atvinnurekanda. Þá gildi lögin um greiðslur til sjálfstætt starfandi einstaklinga sem sæta sóttkví. Mál þetta varði greiðslur í sóttkví og þá hvort skilyrði laga nr. 24/2020 séu uppfyllt í máli kæranda. Í 3. gr. laga nr. 24/2020 sé að finna skilgreiningu á hugtakinu sóttkví. Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögunum komi fram að um sé að ræða aðgerð þar sem viðkomandi einstaklingur sætir ekki jafn ströngum fyrirmælum um að halda sig heima og innandyra og ef um einangrun væri að ræða, sbr. leiðbeiningar Embættis landslæknis fyrir almenning varðandi sóttkví í heimahúsi. Sóttkví sé því almennt beitt vegna þeirra sem hafi mögulega smitast af sjúkdómi en sýni ekki merki þess að vera sýktir.

Í 5. gr. laga nr. 24/2020 sé fjallað um skilyrði fyrir greiðslum til atvinnurekenda. Í athugasemdum með 5. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 24/2020 sé áréttað að ekki sé gert ráð fyrir að um sé að ræða sóttkví í skilningi frumvarpsins ef launamaður sætir sóttkví samkvæmt beinum fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda þegar hann hafi smitast af COVID-19 sjúkdómnum og sé þar af leiðandi veikur í sóttkví. Lögin gildi um greiðslur til launþega sem ekki sýni merki þess að vera sýktir en verði fyrir launatapi þar sem þeir sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Sóttkví sé einkum beitt í þeim tilgangi að hægja á útbreiðslu veirunnar, vernda viðkvæma hópa fyrir smiti og draga úr álagi á heilbrigðiskerfið og innviði samfélagsins á meðan veiran gangi yfir, sbr. lög nr. 19/1997 um sóttvarnir. Sóttkví sé því beitt vegna þeirra sem hafa mögulega smitast af sjúkdómi en sýna ekki merki þess að vera sýktir. Sóttkví sé beitt þegar einstaklingur hafi mögulega smitast af sjúkdómi en sé einkennalaus. Einangrun sé beitt þegar einstaklingur er með smitandi sjúkdóm en staðfest sýking af COVID-19 falli þar undir, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 259/2020 um sóttkví og einangrun. Einstaklingar í einangrun vegna COVID-19 eigi því ekki rétt á greiðslum samkvæmt lögunum. Samkvæmt skráningu Embættis landlæknis hafi kærandi ekki sætt sóttkví samkvæmt beinum fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Samkvæmt þeim gögnum sem liggi til grundvallar umsókn kæranda hafi hann farið beint í einangrun eftir að hafa farið í sýnatöku hjá Íslenskri erfðagreiningu og greinst með jákvætt sýni.

Í ljósi fyrirliggjandi gagna sé það afstaða Vinnumálastofnunar að þar sem kærandi hafi ekki sætt sóttkví samkvæmt beinum fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda séu skilyrði laga nr. 24/2020 ekki uppfyllt. Með vísan til framangreindra sjónarmiða hafi það verið niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi  eigi ekki rétt á greiðslum á grundvelli laga nr. 24/2020 um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt beinum fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að sýna merki þess að vera sýktir.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að hafna umsókn kæranda um greiðslur á grundvelli laga nr. 24/2020 um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir. 

Í 1. gr. laga nr. 24/2020 er kveðið á um gildissvið laganna. Þar segir að lögin taki til greiðslna til atvinnurekenda sem greitt hafi launamönnum, sem sæta sóttkví, laun á tímabilinu 1. febrúar 2020 til og með 31. desember 2021. Enn fremur gildi lögin um greiðslur til launamanna sem sæta sóttkví á sama tímabili en fái ekki greidd laun frá atvinnurekanda. Þá gildi lögin um greiðslur til sjálfstætt starfandi einstaklinga sem sæta sóttkví á sama tímabili. Samkvæmt 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. laganna er um sóttkví að ræða þegar einstaklingi er gert að einangra sig eins og kostur er, einkum í heimahúsi, samkvæmt beinum fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda þegar hann hafi mögulega smitast af sjúkdómi.

Í 2. gr. laga nr. 24/2020 kemur fram að markmið laganna sé að styðja við atvinnurekendur sem greiða launamönnum, sem sæta sóttkví, laun þegar önnur réttindi, svo sem veikindaréttur samkvæmt kjarasamningum, eigi ekki við. Með því sé stefnt að því að einstaklingar geti fylgt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda um að sæta sóttkví án þess að hafa áhyggjur af afkomu sinni.

Í 5. gr. laga nr. 24/2020 er kveðið á um skilyrði fyrir greiðslum vegna launamanna. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Heimilt er að greiða atvinnurekanda launakostnað, eftir því sem nánar er mælt fyrir um í lögum þessum. Skilyrði fyrir greiðslum eru að:

a. launamaður, eða barn í hans forsjá undir 13 ára aldri eða barn undir 18 ára aldri sem þiggur þjónustu á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, hafi sætt sóttkví,

b. launamaður hafi ekki getað sinnt vinnu að öllu leyti eða hluta þaðan sem hann sætti sóttkví,

c. önnur atvik hafi ekki staðið í vegi fyrir því að launamaður hafi getað mætt til vinnu á vinnustað og

d. atvinnurekandi hafi sannanlega greitt launamanni laun á meðan hann eða barn í hans forsjá sætti sóttkví.“

Samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laganna skal umsókn um greiðslu vera skrifleg og henni skulu fylgja  fullnægjandi gögn og upplýsingar að mati Vinnumálastofnunar svo að unnt sé að taka afstöðu til þess hvort skilyrði laganna fyrir greiðslu séu uppfyllt, þar með talið afrit af fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda um að viðkomandi skuli sæta sóttkví.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að til þess að öðlast rétt til greiðslna á grundvelli laga nr. 24/2020 þarf einstaklingur að hafa sætt sóttkví samkvæmt beinum fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Óumdeilt er að starfsmaður kæranda sætti ekki sóttkví heldur var hún í einangrun eftir að hafa greinst með Covid-19 veiruna. Að því virtu eru skilyrði laganna ekki uppfyllt. Hin kærða ákvörðun er staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. febrúar 2021, um að synja umsókn A, um greiðslur á grundvelli laga nr. 24/2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum