Hoppa yfir valmynd
9. júní 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Opnað á umsóknir um styrki til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands

Opnað á umsóknir um styrki til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands - myndHeidi Orava/norden.org

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum lögaðila, s.s. félagasamtaka eða áhugamannafélaga, um styrki til verkefna sem felast í hreinsun strandlengju Íslands. 

Styrkirnir eru veittir á grundvelli aðgerðar 17 í aðgerðaráætlun umhverfis-, orku-,  og loftslagsráðuneytisins í plastmálefnum Úr viðjum plastsinsAðgerðin felur í sér að sett verði af stað átak til 3 – 5 ára til allsherjarhreinsunar strandlengjunnar af plasti og öðrum úrgangi. Hreinleiki sjávar er Íslandi afar mikilvægur og hreinsun stranda landsins gegnir þar veigamiklu hlutverki. Strandlengjan er um 5.000 km að lengd og er því nauðsynlegt að framkvæma hreinsun hennar með kerfisbundnum hætti. Sjálfboðaliðar og frjáls félagasamtök hafa gegnt lykilhlutverki við hreinsun íslenskra stranda hingað til og með aðgerðinni og þessum styrkveitingum er ætlunin að svo verði áfram.

Tilgangurinn með styrkveitingunum er sá að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulegum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, efla vitundarvakningu hjá almenningi um mikilvægi strandhreinsana og virkja áhugasama aðila til þátttöku í átaki um hreinsun strandlengjunnar.

Gert er ráð fyrir að styrkþegar veiti Umhverfisstofnun upplýsingar um framgang hvers verkefnis og tölulegar upplýsingar um magn þess úrgangs sem hreinsað er.

Styrkir verða veittir til afmarkaðra verkefna og verða þeir almennt veittir til eins árs í senn.

Heildarstyrkupphæð vegna verkefnisins fyrir árið 2022 eru 30 m.kr.

Umsóknir óskast sendar á netfangið [email protected]

Nánari upplýsingar um styrkveitingar verða birtar á vef ráðuneytisins.

Reglur um styrkveitingar til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands.

Nánari upplýsingar veitir Trausti Ágúst Hermannsson, s. 545-8600, netfang:[email protected]

Umsóknarfrestur er til 27. júní nk.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum