Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Starf Íslands á vettvangi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar

Dreift hefur verið á Alþingi skýrslu heilbrigðisráðherra um þátttöku Íslands í starfsemi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.

Í skýrslunni er greint frá fundum framkvæmdastjórnar WHO, alþjóðaheilbrigðisþinginu, fundum svæðisnefndar WHO í Evrópu og fjölmörgum öðrum fundum og athöfnum á vegum stofnunarinnar á árinu 2007.

Það bar helst til tíðinda að í byrjun ársins tók dr. Margaret Chan frá Kína við starfi forstjóra WHO. Hún lýsti því yfir í upphafi ferils síns að hún myndi halda áfram þeim umbótum innan WHO sem forveri hennar dr. Lee Jong-Wook hóf og að ekki væri von á sérstöku umróti í rekstri eða starfsmannamálum stofnunarinnar. Nýi forstjórinn boðaði að sex mál yrðu höfð til viðmiðunar í starfi WHO á næstu árum. Tvö þeirra beindust að grundvallarþörfum fyrir heilbrigðisþróun og heilbrigðisöryggi. Tvö önnur mál snúa að áætlanagerð og varða eflingu heilbrigðiskerfa og þörf fyrir áreiðanlegri upplýsingar við stefnumörkun og mat á árangri. Tvö hin síðustu eru bæði starfslegs eðlis og varða traust á samstarfsaðilum, sérstaklega við framkvæmd verkefna, og þörfina á því að WHO nái árangri sem ein skipulagsheild.

Hugsanlegur heimsfaraldur inflúensu var eitt aðalumræðuefnið á alþjóðaheilbrigðisþinginu 2007 og öðrum fundum WHO á árinu. Á þinginu var samþykkt ályktun þar sem skorað er á aðildarríkin að deila með sér upplýsingum um inflúensuveirur og að aðgangur að bóluefnum og öðrum úrræðum til að verjast inflúensunni sé gerður greiður. Ályktunin fer einnig fram á að WHO komi sér upp birgðum af bóluefnum gegn H5N1 veirunni og öðrum inflúensuveirum sem gætu valdið faraldri. Malaría heldur áfram að valda á ári hverju meira en milljón dauðsföllum í heiminum en hægt er að koma í veg fyrir flest þessara dauðsfalla með einföldum forvörnum. Ákveðið var að framvegis yrði 25. apríl tileinkaður baráttunni gegn malaríu.

Fram kom að mikill árangur hefði náðst í baráttunni gegn mislingum og hefur dánartíðni vegna þeirra lækkað um 60% á tímabilinu 1999 - 2005. Aðgerðir gegn berklum hafa ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt og er núna áætlað að um 1,6 milljón manna deyi úr berklum árlega. Aðgerðir til þess að draga úr langvinnum sjúkdómum og barátta gegn offitu og ofþyngd skipa æ veigameiri sess í starfsemi WHO bæði á heimsvísu og svæðisbundið. Mannaflamál heilbrigðisþjónustunnar voru einnig til umfjöllunar. Skortur á heilbrigðisstarfsfólki er vandi sem menn glíma jafnt við í ríkum sem fátækum löndum. Heilbrigðisstarfsfólk flytur í vaxandi mæli frá þróunarlöndunum til þeirra landa þar sem velmegun er meiri og þróuðu ríkin mennta ekki nægjanlega marga sérhæfða heilbrigðisstarfsmenn. Fulltrúar Íslands hafa á fundum WHO á undanförnum árum einkum beitt sér í lýðheilsumálum.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum