Hoppa yfir valmynd
14. ágúst 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Styrkir til úttekta á aðgengismálum fatlaðs fólks

Velferðarráðuneytið  auglýsir  lausa  til umsóknar styrki til úttekta á aðgengismálum fatlaðs fólks. Styrkirnir eru veittir í samræmi við framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks þar sem gert er ráð fyrir úttektum á aðgengi að opinberum byggingum, umferðarmannvirkjum og öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að.

Sveitarfélög bera ábyrgð á úttektum (sbr. aðgerðalið A.1 í áætluninni) en markmið úttektanna er að leiða í ljós stöðu aðgengismála í hlutaðeigandi sveitarfélagi. Í framhaldi af úttekt verði gerð áætlun um úrbætur, ef við á.

Velferðarráðuneytið mun veita styrki til þess að framkvæma umræddar úttektir. Auglýst er eftir styrkumsóknum frá sveitarfélögum sem ljúka slíkri úttekt    á    yfirstandandi    ári    2017. Þjónustusvæði sem samanstanda af fleiru en einu sveitarfélagi, sem og ferlinefndir, geta einnig sótt um styrk.

Starfshópur metur umsóknir en forsenda fyrir greiðslu styrks er að ráðuneytinu hafi borist afrit af úttekt sem lýsi stöðu aðgengismála í sveitarfélaginu. Reiknað er með að þessum afritum verði skilað eigi síðar en 8. desember 2017 og greiðsla styrksins fari fram fyrir áramót.

Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 1. september næstkomandi kl. 16.00.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum