Hoppa yfir valmynd
15. desember 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Starfsemi Mílu í ljósi þjóðaröryggishagsmuna

Á fundi sínum hinn 11. október sl. fól ríkisstjórn Íslands samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu að leiða viðræður við Símann hf. um leiðir til að tryggja að starfsemi Mílu ehf. samrýmist þjóðaröryggishagsmunum komi til sölu til erlendra fjárfesta.

Í kjölfar tilkynningar Símans hf. hinn 23. október sl. um fyrirhugaða sölu á Mílu ehf. hafa fulltrúar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins átt í viðræðum við fulltrúa Símans, Mílu og Ardian France SA, um leiðir til að tryggja að starfsemi Mílu samrýmist þjóðaröryggishagsmunum í kjölfar sölunnar.

Viðræðum er nú lokið og fyrir liggur undirritaður samningur milli vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fh. íslenska ríkisins, og Mílu ehf. um kvaðir vegna þjóðhagslega mikilvægra fjarskiptaneta Mílu, í samræmi við áherslur stjórnvalda. Á fundi sínum hinn 14. desember staðfesti ríkisstjórnin samninginn fyrir sitt leyti. Í samningnum koma fram atriði er varða viðskiptahagsmuni Mílu og verður hann af þeim sökum ekki gerður opinber, sbr. 9. gr. upplýsingalaga.

Á gildistíma samningsins gefst stjórnvöldum tími til að lögfesta almenn ákvæði er varða þær kvaðir sem Míla undirgengst í samningnum. Í því sambandi má, auk frumvarps til laga um breytingar á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri sem nú er til meðferðar á Alþingi, vísa til fyrirhugaðrar framlagningar frumvarps til nýrra heildarlaga um fjarskipti og fyrirhugaðs frumvarps til laga um rýni fjárfestinga erlendra aðila í þýðingarmiklum samfélagsinnviðum og tengdri starfsemi vegna þjóðaröryggis.

Samhliða viðræðunum fór fram upplýsingaöflun starfshóps fjögurra ráðuneyta sem var af ríkisstjórninni falið að afla upplýsinga um viðskiptin m.a. í þeim tilgangi að hægt yrði að meta hvort viðskiptin fælu í sér ógn við öryggi landsins eða allsherjarreglu o.s.frv. í skilningi 2. mgr. 12. gr. laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Samkvæmt ákvæðinu er ráðherra heimilt að stöðva erlenda fjárfestingu innan átta vikna frá því honum barst vitneskja um hana ef talið er að fjárfestingin kunni að ógna öryggi landsins eða ganga gegn allsherjarreglu. Starfshópurinn aflaði ítarlegra upplýsinga um viðskiptin og um erlenda fjárfestinn, í þessu tilviki Ardian France SA, og leitaði til viðeigandi aðila eftir frekari gögnum og sjónarmiðum. Greining þeirra upplýsinga sem var aflað hefur leitt til þeirrar niðurstöðu að erlendi fjárfestirinn sem slíkur er ekki talinn fela í sér ógn við öryggi landsins. Greinargerð starfshópsins varðar mat á öryggishagsmunum ríkisins og upplýsingum þeim tengdum og verður af þeim sökum ekki gerð opinber, sbr. 1. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Greinargerðin verður þó að sjálfsögðu kynnt nefndarmönnum þingnefndar sem hefur ofangreint frumvarp til laga um breytingar á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri til meðferðar. Við mat á því hvort beita ætti heimild 2. mgr. 12. gr. laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri skipti mestu máli að samkomulag náðist við Mílu og Ardian France SA um leiðir til að tryggja að starfsemi Mílu samrýmist þjóðarhagsmunum.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum