Hoppa yfir valmynd
13. desember 2019 Utanríkisráðuneytið

Neyðarsöfnun vegna þurrka í Namibíu

Ljósmynd frá Namibíu: gunnisal - mynd

Talið er að tæplega 290 þúsund íbúar Namibíu þurfi á mataraðstoð að halda vegna gífurlegra þurrka. Söfnun er hafin á vegum Rauða krossins á Íslandi til að bregðast við neyðinni.

„Íslendingar eru um 350 þúsund talsins. Ef hvert mannsbarn leggur til 300 krónur getum við á svip stundu safnað um 100 milljónum króna sem myndu renna beint til þurfandi í Namibíu. Þannig myndum við bjarga mörgum mannslífum hjá þessari vinaþjóð okkar. Öll getum við séð af þeirri upphæð og jafnvel meiru til,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum söfnunarinnar á vef Rauða krossins á Íslandi.

Þar segir að vegna mikilla þurrka sem rekja megi til loftlagsbreytinga sé fæðuöryggi ógnað hjá allt að 11 milljón íbúum í sunnanverðri Afríku. „Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) hefur sent frá sér neyðarbeiðni til alþjóðasamfélagsins auk landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans um að bregðast við og aðstoða við fjármögnun á mataraðstoð og landbúnaðaraðstoð á þeim svæðum sem hafa orðið hvað verst út. Rauða kross hreyfingin undirbýr nú aðgerðir í Namibíu, Mósambík, Sambíu og fleiri löndum í sunnanverðri Afríku,“ segir í fréttinni.

Í samstarfi við Rauða krossinn á Íslandi er blásið til söfnunar meðal Íslendinga til að safna fé fyrir neyðaraðstoð í Namibíu. Allt fé sem safnast verður nýtt til að efla landbúnað, auka aðgengi að vatni auk peninga- og matargjafa til þeirra sem verst hafa orðið úti í þurrkunum í Namibíu, en Rauði krossinn einbeitir sér að um 15 þúsund manns sem mest þurfa á aðstoð að halda.

Hægt er að styðja neyðarsöfnunina um 900 kr. með því að senda SMS-ið NAMIBIA í númerið 1900. Eins er hægt að leggja inn á söfnunarreikning Rauða krossins nr. 0342-26-12, kt. 530269-2649, nota Kass eða Aur númerið 123 570 4000.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum