Hoppa yfir valmynd
28. september 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 328/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. september 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 328/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20090006

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. september 2020 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. ágúst 2020, um að synja honum um dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, sbr. 61. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar þann 12. nóvember 2019. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. ágúst 2020, var umsókninni synjað. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála þann 4. september sl. Í kæru óskaði kærandi eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefndinni, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þann 7. september sl. féllst kærunefnd á þá beiðni. Með tölvupósti, dags. 4. september sl., var kæranda leiðbeint um að leggja fram greinargerð vegna kærumálsins til kærunefndar. Þær leiðbeiningar voru ítrekaðar með tölvupósti þann 21. september sl. Greinargerð barst ekki frá kæranda.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var vísað til þess að samkvæmt b-lið 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga væri það forsenda fyrir útgáfu dvalarleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar að áður hafi verið gefið út atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. ágúst 2020, hafi kæranda verið synjað um atvinnuleyfi. Væri stofnuninni því ekki heimilt að veita kæranda dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar og var umsókn hans því synjað.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Greinargerð barst ekki frá kæranda.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 61. gr. laga um útlendinga er fjallað um heimildir til útgáfu dvalarleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar. Samkvæmt 1. mgr. 61. gr. eru skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis skv. ákvæðinu m.a. þau að útlendingur fullnægi grunnskilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna, sbr. a-lið 1. mgr. 61. gr., og að tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar hafi verið veitt á grundvelli laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. b-lið 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga.

Í ákvæði 1. mgr. 52. gr. laga um útlendinga er mælt svo fyrir um að Útlendingastofnun taki ákvörðun um veitingu dvalarleyfis en Vinnumálastofnun um veitingu atvinnuleyfis. Vinnumálastofnun annast m.a. framkvæmd laga um atvinnuréttindi útlendinga, þ.m.t. ákvarðanatöku um hvort útlendingi skuli veitt atvinnuleyfi.

Samkvæmt gögnum málsins er ljóst að Vinnumálastofnun synjaði því að kæranda yrði veitt atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar með ákvörðun, dags. 18. ágúst 2020. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði b-liðar 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu dvalarleyfis. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar því staðfest.

Kærunefnd bendir á að með reglugerð nr. 830/2020, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, setti ráðherra bráðabirgðaákvæði sem kveður á um að útlendingur sem dvaldi hér á landi fyrir 20. mars 2020 í samræmi við 8. gr. reglugerðarinnar og 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga, en hefur ekki komist til síns heima vegna ferðatakmarkana, sóttkvíar eða einangrunar er heimilt að dvelja hér á landi án dvalarleyfis eða vegabréfsáritunar til og með 10. nóvember 2020. Skal skráning hafa farið fram fyrir 10. september 2020 og með beiðni um skráningu þarf að leggja fram afrit af vegabréfi og vegabréfsáritun þegar það á við. Sé kærandi enn á landinu og hafi skráð sig hjá Útlendingastofnun fyrir 10. september sl. þá hefur hann því rétt til að dvelja hér á landi til 10. nóvember 2020 ellegar er dvöl hans hér á landi ólögmæt.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

F.h. kærunefndar útlendingamála,

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir, settur varaformaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum