Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2022

Kosningarréttur erlendra ríkisborgara við sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022

Kosningarétt við kosningar til sveitarstjórnar eiga;

  • danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosning fer fram og eiga skráð lögheimili í sveitarfélaginu,
  • aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosning fer fram og eiga skráð lögheimili í sveitarfélaginu.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands eru 31.702 erlendir ríkisborgarar með kosningarétt við komandi sveitarstjórnarkosningar.

Tíu fjölmennustu hópar erlendra ríkisborgara á kjörskrá við sveitarstjórnarkosningarnar eru:

  1.   Pólskir ríkisborgarar á kjörskrá 13.542
  2.   Litáískir ríkisborgarar á kjörskrá 2.902
  3.   Lettneskir ríkisborgarar á kjörskrá 1.269
  4.   Rúmenskir ríkisborgarar á kjörskrá 1.155
  5.   Þýskir ríkisborgarar á kjörskrá 971
  6.   Danskir ríkisborgarar á kjörskrá 857
  7.   Portúgalskir ríkisborgarar á kjörskrá 856
  8.   Breskir ríkisborgarar á kjörskrá 788
  9.   Spænskir ríkisborgarar á kjörskrá 696
  10.   Filippseyskir ríkisborgarar á kjörskrá 679
         

Á vef Fjölmenningarseturs má finna gagnlegar upplýsingar um framkvæmd kosninga á ensku og fleiri tungumálum, sjá nánar https://www.mcc.is/x22/

Hér er að finna enska þýðingu á kosningalögunum nr. 112/2021 https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Kosningar/Kosningalog_enska.pdf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum