Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2022 Utanríkisráðuneytið

Rammasamningur við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna endurnýjaður

Ljósmynd: WFP/Theresa Piorr - mynd

Rammasamningur Íslands við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, WFP, var endurnýjaður í gær. WFP er ein af áherslustofnunum Íslands á sviði mannúðaraðstoðar. Stofnunin er sú stærsta í heimi á sviði matvælaaðstoðar og aðstoð hennar náði til 115 milljóna manna árið 2021. Ísland veitir árleg kjarnaframlög til stofnunarinnar auk viðbótarframlaga vegna neyðartilvika. Í fyrra námu heildarframlög Íslands til WFP vegna mannúðaraðstoðar 230 milljónum króna.

Ástand mannúðarmála í heiminum hefur ekki verið verra frá því á dögum síðari heimsstyrjaldarinnar. Talið er að nú þurfi 285 milljónir manna á mannúðaraðstoð að halda samanborið við 135 milljónir fyrir tveimur árum. Af þessum fjölda eru 45 milljónir sem draga fram lífið við hungurmörk. Meginástæður er stríðsátök, loftslagsbreytingar og afleiðingar heimsfaraldursins.

Ísland hefur haft nýsköpun að leiðarljósi í samstarfinu við WFP. Þannig hefur Ísland fjármagnað smærri tilraunaverkefni, til dæmis í Malaví og Mósambík sem þykja hafa gefið góða raun og hafa í kjölfarið verið tekin upp í öðrum löndum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum