Hoppa yfir valmynd
25. mars 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 601/2020-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 601/2020

Fimmtudaginn 25. mars 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. nóvember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2020, um að synja beiðni hennar um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 7. október 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 28. október 2020 og óskaði samhliða eftir greiðslu atvinnuleysisbóta frá 7. október 2020 í stað umsóknardags með vísan til þess að hársnyrtistofum hafi verið gert að loka þann dag vegna COVID-19. Með ákvörðun, dags. 18. nóvember 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 86%. Beiðni kæranda um að umsóknin tæki gildi 7. október 2020 var synjað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 18. nóvember 2020. Með bréfi, dags. 5. janúar 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 21. janúar 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. janúar 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði tekin til endurskoðunar. Kærandi sé einyrki sem hafi verið gert að loka starfsstöð sinni vegna sóttvarnaráðstafana stjórnvalda. Upprunalega hafi lokunin einungis átt að vara í tvær vikur en hafi svo verið framlengd án fyrirvara. Illa hafi gengið að fá upplýsingar frá Vinnumálastofnun um hvernig kærandi ætti að beita sér og hvaða réttindi hún hefði. Þegar upplýsingar hafi borist hafi hún formlega sótt um bætur.

Samkvæmt samtali kæranda við starfsmann Vinnumálastofnunar hafi sá starfsmaður talið yfirgnæfandi líkur á því að stofnunin myndi taka mál kæranda til sérstakrar skoðunar því að ekki væri hægt að afgreiða umsóknir á vélrænan hátt eins og venja hafi verið. Ljóst sé að margir séu í sömu stöðu og óumdeilt að um afar óvenjulegar aðstæður sé að ræða sem beri að skoða sérstaklega. Um sé að ræða afar íþyngjandi ákvörðun stjórnvalda sem eigi sér ekki fordæmi og hafi því mikil áhrif á stjórnarskrárvarinn rétt einstaklings til atvinnufrelsis. Aðstæður séu þess eðlis að ekki sé unnt að afgreiða umsóknir án þess að skoða sérstaklega aðstæður þeirra sem ákvarðanir þessar varði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að hafna beiðni kæranda um að fá greiddar atvinnuleysisbætur aftur fyrir umsóknardag hennar. Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi fram að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Þar sem Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 28. október 2020 eigi kærandi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. fortakslaust skilyrði laga nr. 54/2006, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna, sbr. fyrri úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 394/2020.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 7. október 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun tók við umsókn kæranda 28. október 2020 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2020, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 7. október 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum