Hoppa yfir valmynd
5. nóvember 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 362/2019 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 362/2019

Þriðjudaginn 5. nóvember 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. september 2019, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. september 2019, um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 3. mars 2019. Með bréfi, dags. 15. ágúst 2019, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að stofnuninni hefðu borist upplýsingar um að hún hefði verið stödd erlendis apríl 2019 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa tilkynnt það til stofnunarinnar. Kæranda var veittur sjö daga frestur til að skila inn skýringum og farseðlum. Skýringar og farseðlar bárust Vinnumálastofnun samdægurs og kom þar fram að kærandi hefði dvalið erlendis 27. júlí til 3. ágúst 2019. Þann 2. september 2019 var kæranda tilkynnt ákvörðun Vinnumálastofnunar um að bótaréttur hennar yrði felldur niður frá og með þeim degi í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um dvöl sína erlendis. Kærandi var einnig krafin um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að fjárhæð 26.481 kr. að meðtöldu 15% álagi fyrir tímabilið 27. júlí til 3. ágúst 2019.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. september 2019. Með bréfi, dags. 3. september 2019, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 26. september 2019, og með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dagsettu sama dag, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún sé að flytja til útlanda og í öllu stressinu hafi hún steingleymt að tilkynna utanlandsferð sína fyrir fram. Hún hafi látið vita um leið og hún hafi komið heim. Kærandi sé með tvö börn á framfæri og þurfi nauðsynlega á launum að halda til framfærslu. Kærandi sé miður sín yfir mistökum sínum. Tilgangur ferðarinnar hafi verið að leita sér að íbúð og vinnu. Þá greinir kærandi fyrir ástæðum flutninganna.

Kærandi biður um endurskoðun á tveggja mánaða biðtíma á þeim grundvelli að hún hafi gert lítil mistök. Hún viðurkenni mistökin. Börnin hennar eigi ekki að gjalda fyrir hennar mannlegu mistök. Þá biðjist hún afsökunar á mistökum sínum, kveðst hafa kynnt sér reglur Vinnumálastofnunar vel og vandlega núna og að þetta muni ekki koma fyrir aftur.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Atvinnuleysistryggingar veiti hinum tryggðu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Í 13. gr. laganna séu talin upp almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Segi meðal annars í c-lið ákvæðisins að það sé skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Á vef Vinnumálastofnunar komi þessar upplýsingar fram undir liðnum „réttindi og skyldur - upplýsingaskylda“. Þar segi: „Ekki er heimilt að dvelja erlendis á sama tíma og umsækjandi þiggur atvinnuleysisbætur nema hafa sótt um U2-vottorð.“ Einnig sé vakin athygli á þessu í umsóknarferli á “Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar.

Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjanda. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingaskyldu hins tryggða. Kærandi hafi verið stödd erlendis frá 27. júlí til 3. ágúst 2019, á sama tíma og hún hafi verið skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Reyndar hafi kærandi sagst vera erlendis frá 28. ágúst í kæru sinni til nefndarinnar en meðal málsgagna sé að finna afrit af brottfararspjaldi kæranda þar sem fram komi að hún hafi flogið til B frá Keflavík þann 27. júlí 2019. Stofnuninni hafi ekki borist tilkynning fyrir fram um utanlandsferð kæranda, líkt og skylt sé samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeim sökum hafi kærandi ekki uppfyllt skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar á því tímabili og fengið þar af leiðandi ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma.

Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, þar á meðal ferðir sínar utanlands. Þegar rafrænni umsókn um greiðslu atvinnuleysisbóta sé skilað sé umsækjendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis. Umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn um réttindi og skyldur umsækjenda um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi samþykkt ofangreinda skilmála þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni. Kæranda hafi einnig verið sendur tölvupóstur þann 5. mars 2019 vegna umsóknar hennar um atvinnuleysisbætur þar sem henni hafi verið bent á að ef farið væri til útlanda þyrfti að tilkynna það fyrir fram og skila afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Þá séu víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á vefsíðu Vinnumálastofnunar undir liðnum „réttindi og skyldur – upplýsingaskylda“. Þar komi skýrt fram að atvinnuleitanda beri að veita nákvæmar upplýsingar um hagi sína.

Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um utanlandsferð sína líkt og henni hafi borið. Eins og að ofan greini hafi kærandi fengið upplýsingar um réttindi sín og skyldur, þar með talið varðandi tilkynningar á dvölum erlendis. Að öllu framangreindu virtu sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysistrygginga og að hún skuli því sæta viðurlögum samkvæmt 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi þurfi því að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

Þá beri kæranda einnig að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hún hafi verið stödd erlendis. Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær atvinnuleysisbætur sem ofgreiddar hafa verið. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps er varð að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum þeim tilvikum þegar atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 27. júlí til 3. ágúst 2019 að upphæð 23.027 kr. eða samtals 26.481 kr. með 15% álagi. Innheimta á skuld fari fram samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna, þ.e. með skuldajöfnuði við 25% af síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum.

 

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og innheimta ofgreiddar bætur samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur og staddur hér á landi. Óumdeilt er að kærandi var stödd erlendis 27. júlí til 3. ágúst 2019, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um ferð sína. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi í stressi gleymt að tilkynna Vinnumálastofnun fyrir fram um utanlandsferð sína. Þá hafi tilgangur ferðarinnar verið að leita sér að íbúð og vinnu. Af hálfu Vinnumálastofnunar hefur komið fram að þegar umsækjendur um atvinnuleysisbætur sæki um greiðslur bóta með rafrænni umsókn sé þeim kynnt margvísleg atriði er varða réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis. Þá þurfi umsækjendur að staðfesta í lok umsóknarferlisins að þeir hafi kynnt sér reglur um réttindi þeirra og skyldur.

Í ljósi framangreindrar upplýsingaskyldu verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum gagnvart stofnuninni er hún tilkynnti ekki fyrir fram um ferð sína erlendis. Að því virtu bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að endurkrefja kæranda um ofgreiddar bætur er hún var erlendis. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Þegar kærandi var erlendis á tímabilinu 27. júlí til 3. ágúst 2019 uppfyllti hún ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um að vera búsett og stödd hér á landi. Þá sótti kærandi ekki um heimild til að leita atvinnu í öðru aðildarríki að samningi um Evrópska efnahagssvæðið samkvæmt VIII. kafla laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um ferð sína erlendis og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. september 2019, um að fella niður bótarétt A í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum