Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2013 Dómsmálaráðuneytið

Auglýsing um kosningarrétt íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru erlendis

Innanríkisráðuneytið minnir á auglýsingu ráðuneytisins frá 23. október síðastliðnum varðandi kosningarrétt íslenskra ríkisborgara sem sest hafa að erlendis. Þeir halda kosningarrétti sínum í átta ár frá því að þeir fluttu lögheimili sitt talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Þeir sem vilja vera á kjörskrá en fluttu af landi brott fyrir 1. desember 2005 og hafa verið búsettir erlendis síðan þurfa að senda Þjóðskrá Íslands umsókn fyrir 1. desember næstkomandi til að halda kosningarrétti sínum. Auglýsingin fer hér á eftir:

Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eiga íslenskir ríkisborgarar, sem flust hafa af landi brott og sest að erlendis, kosningarrétt á Íslandi í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Þeir eru því sjálfkrafa á kjörskrá þann tíma. Að þessum tíma liðnum falla menn af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá að halda kosningarrétti.

Því þurfa þeir, sem vilja vera á kjörskrá, en fluttu af landi brott fyrir 1. desember 2005 og hafa verið búsettir erlendis síðan, að senda umsókn til Þjóðskrár Íslands fyrir 1. desember 2013, til þess að halda kosningarrétti. Kosningarrétturinn gildir þá til 1. desember 2017, en endurnýja þarf hann með nýrri umsókn til Þjóðskrár Íslands eftir 1. desember 2016.

Umsókn skal senda Þjóðskrá Íslands og má finna umsóknareyðublöð á vefsíðu stofnunarinnar. Frekari upplýsingar um kosningarréttinn má finna á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.

Einungis þeir sem einhvern tíma hafa átt lögheimili á Íslandi geta átt kosningarrétt hér á landi. Kosningarréttur miðast við 18 ára aldur. Reglur þessar gilda með sama hætti um kjör forseta Íslands og þjóðaratkvæðagreiðslur en ekki um kosningar til sveitarstjórna.

Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann átti síðast lögheimili á Íslandi samkvæmt þjóðskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum