Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 119/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 15. apríl 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 119/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21020055

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.               Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í stjórnsýslumáli nr. KNU19050054, dags. 28. ágúst 2019, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar frá 14. maí 2019 um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt fyrir kæranda þann 2. september 2019. Þann 15. febrúar 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku ásamt fylgigögnum.

Af endurupptökubeiðni kæranda má ráða að krafan byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.                  Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sinni fjallar kærandi um 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga en þar komi fram að aðili máls eigi rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Meðfylgjandi greinargerð sinni til kærunefndar lagði kærandi fram bréf frá sálfræðingi en af greinargerðinni má sjá að kærandi telji að andlegri heilsu sinni hafa hrakað það mikið að ekki sé hægt að líta framhjá þeirri staðreynd að málsatvik hafi breyst verulega frá því að úrskurður var kveðinn upp í máli hans.

Þá er í greinargerð færð rök fyrir því að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Kærandi vísar til tiltekinna úrskurða kærunefndar máli sínu til stuðnings.

Með tölvupósti kærunefndar þann 8. mars 2021 var athygli kæranda vakin á því að 18 mánaða frestur samkvæmt 2. mgr. 29. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin) kynni að vera liðinn og kæranda veittur frestur til að láta í ljós afstöðu sína. Þann sama dag barst tölvupóstur frá kæranda þar sem fram kom sú afstaða kæranda að fresturinn væri liðinn, sbr. 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

III.                Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b-, og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverjum samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröðun, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Eins og fram kemur í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. KNU19050054 frá 28. ágúst 2019 samþykkti Ítalía viðtöku á kæranda á þeim grundvelli að hann væri með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Við rekstur máls sem fer samkvæmt fyrirkomulagi Dyflinnarreglugerðarinnar þurfa stjórnvöld að gæta að tilteknum tímafrestum, sbr. m.a. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um fyrirkomulag og fresti. Í því ákvæði felst m.a. að flutningur á umsækjanda skal fara fram innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru eða endurskoðun. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að framlengja frest til flutnings í að hámarki 18 mánuði ef hlutaðeigandi einstaklingur hleypst á brott (e. abscond). Ef umræddir frestir líða leiðir það til þess að ábyrgð á viðkomandi umsókn um alþjóðlega vernd færist sjálfkrafa yfir til þess aðildarríkis sem leggur fram beiðni, sbr. til hliðsjónar dómur Evrópudómstólsins í Shiri, C-201/16, frá 25. október 2017, 26. - 34. mgr. Ef frestir samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar líða er íslenskum stjórnvöldum því ekki lengur heimilt að krefja viðkomandi ríki um viðtöku einstaklings í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar, s.s. úrskurði nefndarinnar nr. KNU19040090 frá 9. maí 2019, að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Af gögnum málsins má sjá að ítölsk stjórnvöld samþykktu endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda þann 23. janúar 2019. Þá var endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi birt fyrir kæranda þann 2. september 2019.

Í ljósi endurupptökubeiðni kæranda og þeirra tafa sem orðið höfðu á flutningi hans taldi kærunefnd tilefni til að óska eftir nánari upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra. Með tölvupósti, dags. 15. febrúar 2021, óskaði nefndin m.a. eftir upplýsingum um þær tafir sem hefðu orðið á framkvæmd ákvörðunar í máli kæranda. Þann 15. og 16. febrúar 2021 bárust svör frá Útlendingastofnun og stoðdeild þar sem m.a. kom fram að kærandi hefði í þrígang látið sig hverfa og komið sér undan fyrirhuguðum flutningi til Ítalíu, nú síðast þann 11. febrúar 2021. Þá óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá Útlendingastofnun, s.s. um samskipti þeirra við ítölsk stjórnvöld, með tölvupósti nefndarinnar dagana 16. og 17. febrúar 2021 og bárust svör frá stofnuninni dagana 16., 17. og 18. febrúar 2021. Kærandi var með tölvupósti nefndarinnar þann 23. febrúar 2021 upplýstur um öll þau samskipti sem kærunefnd hafði átt við bæði Útlendingastofnun og stoðdeild og veitt tækifæri á að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Þann 26. febrúar 2021 barst svar frá kæranda þar sem m.a. kom fram að það væri mat talsmanns að kærandi væri ekki í ástandi til þess að taka afstöðu til þeirra upplýsinga og gagna sem kærunefnd hafði sent.

Líkt og áður hefur komið fram var úrskurður kærunefndar birtur fyrir kæranda þann 2. september 2019 og flutningur til viðtökuríkis hefur ekki enn átt sér stað. Því eru liðnir meira en 18 mánuðir frá því að endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi lá fyrir.

Í ljósi þess að flutningur kæranda til viðtökuríkis fór ekki fram innan þeirra tímafresta sem Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Þar sem 18 mánaða frestur til flutnings er liðinn er skylda Ítalíu til viðtöku á kæranda fallin niður og færist ábyrgðin sjálfkrafa yfir á íslenska ríkið, sbr. 1. og 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar sem og til hliðsjónar áðurnefndur dómur í Shiri. Kærunefnd telur því að ekki sé heimilt að krefja ítölsk stjórnvöld um að taka við kæranda á grundvelli viðmiða og fyrirkomulags Dyflinnarreglugerðarinnar, sbr. c-liður 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í ljósi framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu, er að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

 

 

 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellant‘s request for re-examination of his case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum