Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2023 Utanríkisráðuneytið

UN Women: Yfir eitt hundrað milljónir hafa safnast með FO varningi

Á síðustu sjö árum eða frá árinu 2015 hefur almenningur á Íslandi styrkt starf UN Women á heimsvísu um 105 milljónir króna með kaupum á FO varningi. Fyrsta herferð landsnefndar UN Women undir formerkjum „Fokk ofbeldi“ fól í sér sölu á FO armböndum. Síðan þá hefur ýmiss konar FO varningur verið framleiddur undir sömu formerkjum og seldur til styrktar verkefnum UN Women sem miða að því að uppræta kynbundið ofbeldi.

Árið 2022 var nýr tónn sleginn og ákveðið að framleiða FO vettlinga til styrktar hinsegin verkefnum UN Women. Þörfin var knýjandi þar sem hinsegin sjóður UN Women hafði staðið tómur síðan í maí 2022.

Vettlingarnir sem framleiddir voru af VARMA í samstarfi við Sjóvá og hannaðir af Védísi Jónsdóttur, prjónahönnuði, hafa verið einstaklega vinsælir og landsnefndin hefur ekki annað eftirspurn frá því að þeir voru kynntir. Samtals söfnuðust 14.974.410 krónur með sölu á FO vettlingunum.

„Íslenska landsnefnd UN Women á Íslandi vill koma á framfæri innilegum þökkum fyrir stuðninginn í gegnum árin. Það skiptir máli að styðja við starf UN Women með þessu hætti. Það er almenningi á Íslandi að þakka að hinsegin sjóðurinn er ekki lengur tómur. Það er einnig þeim að þakka að íslenska landsnefndin sendir hæsta framlag allra landsnefnda til kjarnaverkefna UN Women ár eftir ár. Það er vel við hæfi að hefja árið 2023 á því að senda þakkir til þeirra þúsunda mánaðarlegra styrktaraðila og bakhjarla sem gera þennan árangur raunhæfan,“ segir á vef UN Women.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum