Hoppa yfir valmynd
22. desember 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 112/2020 Úrskurður 22. desember 2020

Mál nr. 112/2020                   Eiginnafn:      Frederik (kk.)

 

Mannanafnanefnd hefur borist ábending um að eiginnafnið Frederik (kk.) sé ekki á mannanafnaskrá.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Ritmyndir rótgróinna íslenskra nafna sem stríða gegn hefð varðandi ritun þeirra geta ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Þess vegna er einungis hægt að fallast á ritháttinn Frederik sem ritmynd karlmannsnafnsins Friðrik ef þessi ritháttur telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá bera þrír núlifandi karlar, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna, eiginnafnið Frederik. Sá elsti er fæddur 1983. Auk þess kemur nafnið fyrir í ellefu manntölum frá 1703–1920. Telur nefndin því að hefð sé fyrir rithættinum Frederik.

 

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Frederik (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd nafnsins Friðrik (kk.).

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum