Hoppa yfir valmynd
13. mars 2015 Innviðaráðuneytið

Innanríkisráðherra skipar í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur skipað fulltrúa í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Formaður nefndarinnar er Guðný Sverrisdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi, sem skipuð er án tilnefningar og varaformaður skipaður með sama hætti er Ólafur Adolfsson, bæjarfulltrúi í Akraneskaupstað.

Með breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 sem tók gildi 16. desember síðastliðinn, er fulltrúum í ráðgjafarnefndinni fjölgað úr fimm í sjö. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tilnefnt fjóra fulltrúa til setu í nefndinni en tilnefnir nú sex fulltrúa og jafn marga til vara.

Samkvæmt tilnefningu stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur ráðherra því einnig skipað eftirtalda aðalmenn og varamenn í ráðgjafarnefndina:

Aðalmenn:  

  • Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
  • Karen E. Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogsbæ           
  • Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúi í Sveitarfélaginu Skagafirði          
  • Sigríður Huld Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í Akureyrarkaupstað             
  • Valdimar O. Hermannsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð             
  • Ásgerður Gylfadóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði                         

Varamenn:  

  • Ellý Katrín Guðmundsdóttir, borgarritari í Reykjavíkurborg           
  • Bryndís Haraldsdóttir, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ          
  • Kristján Andri Guðjónsson, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ            
  • Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Dalabyggð     
  • Soffía Helgadóttir, bæjarfulltrúi í Norðurþing
  • Ólafur Þór Ólafsson, bæjarfulltrúi í Sandgerðisbæ

Starfstími nefndarinnar er fram að sveitarstjórnarkosningum 2018.

Fráfarandi ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga eru færðar þakkir fyrir vel unnin störf.       

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum