Hoppa yfir valmynd
20. júní 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 306/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 20. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 306/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040094

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. apríl 2019 kærði [...], kt. [...], sem er [...] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. apríl 2019, um að synja henni um ótímabundið dvalarleyfi.

Kærandi gerir aðallega þá kröfu að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og kæranda verði veitt ótímabundið dvalarleyfi. Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og stofnuninni verði gert að taka málið til efnislegrar meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk útgefið dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi þann 15. október 2014 og var það endurnýjað, síðast með gildistíma 29. október 2016. Þann 22. nóvember 2017 fékk kærandi almennt dvalarleyfi með gildistíma til 22. nóvember 2019. Þann 7. september 2018 lagði kærandi fram umsókn um ótímabundið dvalarleyfi. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. apríl 2019, var umsókn kæranda synjað. Kæranda var tilkynnt um ákvörðunina þann 5. apríl s.l. og þann 16. apríl sl. kærði kærandi ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 6. maí 2019. Viðbótargagn barst þann 5. júní sl.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar voru skilyrði fyrir útgáfu ótímabundins dvalarleyfis rakin, sbr. 58. gr. laga um útlendinga. Meðal skilyrða væri að útlendingur ætti ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann væri grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi, sbr. e-lið 1. mgr. 58. gr. Fram kom að samkvæmt upplýsingum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum ætti kærandi ólokið mál í refsivörslukerfinu. Þar sem kærandi uppfyllti ekki fyrrnefnt skilyrði e-liðar 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga var umsókn hennar um ótímabundið dvalarleyfi synjað.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda segir að umrætt mál hafi átt rætur að rekja til [...], en kærandi hafi verið sökuð um að [...]. Byggir kærandi á því að vandséð sé hvernig málsmeðferð Útlendingastofnunar samrýmist meðalhófsreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Hafi synjun Útlendingastofnunar mikil og íþyngjandi áhrif á kæranda enda skipti þau réttindi sem fylgi ótímabundnu dvalarleyfi hana miklu máli. Þá bindi kærandi vonir við að málinu verði lokið hjá lögreglu á meðan málið sé til meðferðar hjá kærunefnd.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 58. gr. laga um útlendinga er fjallað um ótímabundið dvalarleyfi. Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. er heimilt að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis eru m.a. tilgreind í stafliðum a-e í 1. mgr. 58 gr., en samkvæmt e-lið er það skilyrði að útlendingur eigi ekki ólokið máli í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.

Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, dags. 10. maí 2019, á kærandi ekki lengur ólokið mál í refsivörslukerfinu. Þá hefur kærandi lagt fram bréf frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, dags. 3. maí 2019, þar sem fram kemur að lögregla hafi hætt rannsókn í fyrrnefndu máli. Með vísan til framangreinds verður ákvörðun Útlendingastofnunar því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellant’s case.

 

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                Anna Valbjörg Ólafsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum