Hoppa yfir valmynd
20. mars 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 158/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 20. mars 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 158/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18010033

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 31. janúar 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. janúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Frakklands.Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 31. ágúst 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu hvergi verið skráð. Þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun hjá frönskum stjórnvöldum var þann 19. október 2017 beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 12. desember 2017 barst svar frá frönskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 11. janúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Frakklands. Kæranda var birt ákvörðun Útlendingastofnunar þann 16. janúar 2018. Kærandi kærði ákvörðunina þann 31. janúar 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 9. febrúar 2018. Frekari gögn bárust kærunefnd þann 1. mars 2018.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Frakklands. Lagt var til grundvallar að Frakkland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. sömu laga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Frakklands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi unnið launalaust hjá fasteignasala í heimaríki sínu, [...]. Þegar kærandi hafi krafist umsaminnar greiðslu fyrir vinnuframlag sitt hafi fasteignasalinn hótað honum lífláti. Því hafi kærandi flúið til Frakklands en þangað hafi umræddur maður elt kæranda. Kærandi óttist að fyrrum yfirmaður sinn muni finna sig í Frakklandi enda búi margir [...] í Frakklandi og því hægt að hafa uppi á honum þar. Kærandi óttist að umræddur maður muni drepa hann en kveðst vera óhultur á Íslandi enda viti maðurinn ekki af honum hér.

Kærandi gerir grein fyrir aðstæðum og réttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi í greinargerð sinni. Vísar kærandi m.a. til skýrslna um ástand mannréttindamála og stefnu franskra stjórnvalda í innflytjendamálum. Kærandi bendir meðal annars á að opinber aðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd sé af skornum skammti. Umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi t.d. að forskrá sig inn í hæliskerfið, en slík skráning geti tekið allt að tveimur mánuðum og á meðan njóti umsækjendur engrar aðstoðar. Umsækjendur eigi almennt rétt á húsnæði, grunnframfærslu og heilbrigðisþjónustu, en þrátt fyrir það hafi frönsk stjórnvöld ekki getað séð öllum fyrir húsnæði, sem valdi því að þúsundir einstaklinga hafist við í ólöglegum búsetuúrræðum. Frönsk stjórnvöld hafi gengið hart fram í því skyni að loka slíkum búsetuúrræðum og þekkist þess dæmi að svefnpokar, teppi og aðrar eigur umsækjenda um alþjóðlega vernd séu gerðar upptækar. Þá glími innflytjendur við mismunun í Frakklandi sökum uppruna síns og þá hafi ofbeldi gegn innflytjendum, sérstaklega múslimum, aukist mikið í kjölfar nýlegra hryðjuverkaárása í Frakklandi.

Kærandi byggir á því að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar kærandi í greinargerð meðal annars til lögskýringagagna að baki ákvæðinu. Kærandi hafi búið við ótta um líf sitt í heimaríki og í Frakklandi eftir að fyrrum vinnuveitandi hans hafi hótað honum lífláti. Í ljósi aðstæðna umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi telur kærandi að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Frakklandi ef hann þurfi að sækja um alþjóðlega vernd þar í landi, enda eigi franska ríkið erfitt með að taka á móti jafn mörgum umsækjendum um alþjóðlega vernd og sótt hafa til landsins á síðustu árum. Kærandi leggur áherslu á skyldu íslenskra stjórnvalda að framkvæmt verði ítarlegt og einstaklingsbundið mat á aðstæðum sínum.Varakrafa kæranda er reist á því að rannsókn málsins hjá Útlendingastofnun hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 6. tölul. 3. gr. sömu laga. Varakröfu sinni til stuðnings vísar kærandi meðal annars til umfjöllunar kærunefndar útlendingamálum í eldri úrskurðum um efni og inntak rannsóknarreglunnar.

Þá barst kærunefnd útlendingamála bréf frá Rauða krossinum varðandi gildistöku reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Þar koma m.a. fram sjónarmið um lagaskil, afturvirkni laga og andmælarétt.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að frönsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Frakklands er byggt á því að kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun til Frakklands. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans hjá Útlendingastofnun. Kærandi er ungur, einstæður karlmaður sem greindi frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að andleg og líkamleg heilsa hans væri góð en að hann hafi leitað til tannlæknis. Gögn málsins bera með sér að kærandi sé almennt heilbrigður, hafi farið í aðgerð á fæti vegna slyss árið 2016 og sé með skemmdir í tönnum.

Í ljósi gagna málsins metur kærunefnd aðstæður kæranda ekki slíkar að hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi. Kærunefnd telur að persónulegir eiginleikar hans og aðstæður hans séu ekki þess eðlis að hann teljist hafa sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð máls hans hér auk þess sem ekki verður talið að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2016 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 3. mars 2017),
  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – France (22. febrúar 2018),
  • Annual Report 2016 – Paris (International Committee of the Red Cross (ICRC), 23. maí 2017),
  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 13. febrúar 2018),
  • Dublin II Regulation & Asylum in France – Guide for Asylum Seekers – 2012 (Forum réfugiés, European Refugee Fund, 2012),
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015),
  • Freedom in the World 2017 – France (Freedom House, 15. apríl 2017),
  • Guide for Asylum Seekers in France (Ministry of the Interior, General Directorate for Foreign Nationals in France, 1. nóvember 2015),
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/),
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017)
  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fær umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geti sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fer greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), tekur svo efnisákvörðun í málinu.

Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins frestar almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoðar bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA er hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fer formleg endurskoðun. Þeir umsækjendur sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eiga möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli kæranda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd. Þegar umsókn hefur verið lögð fram eiga umsækjendur rétt á gistiplássi í móttökumiðstöð en í framangreindum skýrslum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga möguleika á því að fá annaðhvort húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum eða í tímabundnum gistiskýlum á vegum stjórnvalda á meðan þeir eru á biðlista eftir plássi í móttökumiðstöð. Þeir sem endursendir eru til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta leitað til CAO (f. Centre d’accueil et d’orientation) eða PRAHDA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile) móttökumiðstöðvanna. Auk þess standa þeim til boða önnur tímabundin neyðarúrræði á meðan beðið er eftir plássi í móttökumiðstöðvum. Í CAO móttökumiðstöðvunum fá umsækjendur aðstoð félagsráðgjafa í tengslum við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Fái þeir ekki pláss í slíkum miðstöðvum geta umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða meðal annars upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd. Þá mega umsækjendur hafa lögfræðing eða annan fulltrúa frá frjálsum félagasamtökum með sér í viðtölum hjá OPII og OFPRA. Þegar umsækjendur kæra neikvæða niðurstöðu til CNDA stjórnsýsludómstólsins eigi þeir rétt á lögfræðiaðstoð sem í mörgum tilvikum er gjaldfrjáls.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Frakklandi kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu samkvæmt frönskum lögum. Umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfa þó að sækja um aðgang að kerfinu. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Frakklandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar

.Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi er ungur, einstæður karlmaður sem kvaðst í viðtölum hjá Útlendingastofnun vera við góða andlega og líkamlega heilsu, en hann hafi þó leitað til tannlæknis. Í samskiptaseðlum frá Göngudeild sóttvarna kemur m.a. fram að kærandi glími við tannpínu og að hann farið í aðgerð [...] og fái enn [...]. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi má ráða að umsækjendur hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og er það mat kærunefndar að kærandi komi til með að hafa aðgengi að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá beri gögn málsins, þ. á m. upplýsingar í samskiptaseðlum frá Göngudeild sóttvarna ekki með sér að heilsufar hans sé með þeim hætti að framkvæmd vegna synjunar á að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi hafi í för með sér verulegar eða óafturkræfar afleiðingar fyrir heilsufar hans.

Í greinargerð sinni kveðst kærandi hafa búið við ótta um líf sitt í heimaríki sínu og í Frakklandi, en fyrrum vinnuveitandi hans hafi hótað honum lífláti og elt sig til Frakklands. Í ljósi aðstæðna í Frakklandi og að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það mat kærunefndar að kærandi komi ekki til með að eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, m.a. vegna alvarlegrar mismununar. Kærandi geti leitað sér verndar aðstoðar yfirvalda í Frakklandi óttist hann að á honum verði brotið. Það er því mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi slíkar sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 4. janúar 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 31. ágúst 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Varakrafa kæranda lýtur að því að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant, m.a. þar sem ekki hafi verið aflað nauðsynlegra gagna og upplýsinga um persónulega og einstaklingsbundna stöðu kæranda. Hann hafi ekki fengið aðgang að sálfræðiþjónustu og þá hafi aðstæður í móttökuríki ekki verið skoðaðar. Gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar og telur hana ekki uppfylla skilyrði rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Um frekari afmörkun á hversu ítarlega beri að rannsaka mál, ber m.a. að líta til þess hversu mikilvægt það er. Því tilfinnanlegri eða meira íþyngjandi sem stjórnvaldsákvörðun er, þeim mun strangari kröfur verður að gera til rannsóknar á þeim atvikum sem leiða til niðurstöðunnar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 12. september 2017, kvaðst kærandi vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Aðspurður aftur um heilsu sína í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 4. janúar 2018, staðfesti hann gott heilsufar sitt. Í sama viðtali var kæranda leiðbeint um að ef hann skyldi leita til læknis eða sálfræðings þá bæri honum að fá skriflegar upplýsingar um heilsufar sitt og skila til stofnunarinnar teldi hann þær hafa þýðingu í máli sínu. Væri frestur til að leggja fram slík gögn tvær vikur frá viðtali. Engin frekari gögn bárust Útlendingastofnun frá kæranda. Kærunefnd bendir á að kærandi naut aðstoðar talsmanns við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Hefði kærandi eða talsmaður hans talið nauðsynlegt að leggja fram gögn varði heilsu hans var slíkt mögulegt við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Er það mat kærunefndar að ekki hafi verið tilefni til þess að óska eftir frekari gögnum um andlega eða líkamlega heilsu kæranda. Þá er það mat kærunefndar að nægar upplýsingar hafi legið fyrir um einstaklingsbundnar aðstæður kæranda í Frakklandi við ákvörðun Útlendingastofnunar. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er að finna umfjöllun um aðstæður og málsmeðferð í Frakklandi og vísað til alþjóðlegra skýrslna er það varðar. Með vísan til alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að slíkur ágalli hafi verið á rökstuðningi niðurstöðu ákvörðunar Útlendingastofnunar þannig að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 og andmælaréttur

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars sl. voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Að mati kærunefndar fól gildistaka reglugerðarinnar ekki í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kæranda. Koma því sjónarmið um afturvirkni laga, að því marki sem þau kynnu að vera sambærileg varðandi setningu stjórnvaldsfyrirmæla, ekki til skoðunar þessu máli.

Þá verður ekki litið svo á setning reglugerðarinnar feli í sér að ný gögn eða upplýsingar hafa bæst við í máli hans sem kæranda hafi verið ókunnugt um. Stendur andmælaréttur aðila máls því ekki í vegi fyrir því að kærunefnd úrskurði í málinu þótt kæranda hafi ekki verið veitt sérstakt tækifæri til að koma að sjónarmiðum varðandi setningu umræddrar reglugerðar. Í því sambandi áréttar kærunefnd að kærandi hefur ekki óskað eftir því að málinu verði frestað, sbr. 18. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Samantekt

Í máli þessu hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.Anna TryggvadóttirErna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum