Hoppa yfir valmynd
7. apríl 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust 188 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur þann 6. apríl 2021. Greiðslumark er tiltekið magn mjólkur mælt í lítrum sem veitir rétt til beingreiðslna úr ríkissjóði og fara aðilaskipti að greiðslumarki fram á markaði. Þetta er fyrsti markaður ársins og viðskiptin taka gildi frá 1. janúar sl., þ.e. kaupandi getur nýtt greiðslumarkið á yfirstandandi framleiðsluári.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða þessa fyrsta markaðar nú fyrir.

Hámarksverð greiðslumarks er þrefalt afurðastöðvaverð, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 1252/2019 um stuðning í nautgriparækt, sem við lok tilboðsfrests var 294 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði, þ.e. 294 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 9.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 188.
  • Ekkert tilboð var undir jafnvægisverði/hámarksverði.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 663.754 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru  9.157.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 663.590 lítrar að andvirði 195.095.460 kr.
  • Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 33.176 lítrar. Fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 19.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í AFURÐ.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum