Hoppa yfir valmynd
8. maí 2018 Forsætisráðuneytið

Hagsmunaskráning ráðuneytisstjóra og aðstoðarmanna ráðherra

Hagsmunaskráning ráðuneytisstjóra og aðstoðarmanna ráðherra - myndSamuel Zeller af Unsplash

Ríkisstjórnin ákvað að taka upp hagsmunaskráningu fyrir ráðuneytisstjóra í Stjórnarráði Íslands og aðstoðarmenn ráðherra á fundi sínum í morgun. Í nýlegri skýrslu GRECO er athygli íslenskra stjórnvalda vakin á því að ástæða kunni að vera til að láta hagsmunaskráningu ná til þessara starfsmanna með hliðsjón af eðli starfanna og nálægð við vald ráðherra.

Fyrst um sinn verður hagsmunaskráningin valkvæð þar sem skylda til skráningar þyrfti að eiga sér skýra lagastoð. Forsætisráðuneytið mun útbúa eyðublað fyrir ráðuneytisstjóra og aðstoðarmenn ráðherra vegna hagsmunaskráningar, sambærilegt því sem ráðherrar fylla út og bjóða þessum starfsmönnum að fylla þau út. Forsætisráðuneytið mun taka við útfylltum eyðublöðum, fara yfir upplýsingar og leiðbeina hlutaðeigandi um hvort þörf sé á ráðstöfunum vegna mögulegra hagsmunaárekstra.

Hér er um tilraunaverkefni að ræða og ekki er gert ráð fyrir að upplýsingar sem verða til við þessa skráningu verði birtar opinberlega. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að efla vitund starfsmanna um mikilvægi þess að afstýra hagsmunaárekstrum og bjóða þeim ráðgjöf í vafatilvikum.

Forsætisráðuneytið mun taka saman skýrslu um verkefnið og birta eigi síðar en 30. mars 2019. Í henni verði ekki persónugreinanlegar upplýsingar.
Hagsmunaskráningarkerfi stjórnvalda er nú í heild til endurskoðunar, m.a. í ljósi ábendinga GRECO. Endurskoðunin lýtur að því hverjum skuli skylt að skrá hagsmuni, hvort gera eigi ráð fyrir upplýsingagjöf og ráðgjöf í trúnaði í vissum tilvikum og hversu víðfeðm skráningarskyldan eigi að vera. Síðastefnda atriðið varðar til dæmis skráningu skuldbindinga og hagsmuni maka og ólögráða barna viðkomandi.

Uppfærsla - 17. maí 2018:

Hagmunaskráning aðstoðarmanna og nokkurra ráðuneytisstjóra hefur nú verið birt og stefnt er að því að birtingu ljúki á allra næstu dögum. Birtingin er að frumkvæði aðilanna sem við eiga, aðstoðarmanna og ráðuneytisstjóra, og í kjölfarið verður unnið að því að yfirfara löggjöf sem varðar birtingu upplýsinga af þessu tagi.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum