Hoppa yfir valmynd
13. júní 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 299/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 299/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19030057

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 26. mars 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fædd […], og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. mars 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 1., 2., og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 24. september 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 26. september 2018, kom í ljós að fingraför hennar höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Þann 4. október 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 5. október 2018, synjuðu þau viðtöku kæranda þar sem henni hefði þegar verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu og að hún væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 16. júní 2020. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 24. október 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 8. mars 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 12. mars 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 26. mars 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 4. apríl 2019 ásamt fylgigögnum. Frekari gögn bárust frá kæranda 2., 27. og 31. maí 2019, auk þess sem viðbótargögn bárust 6. júní 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Ítalíu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í heimaríki hafi hún verið […]. Í kjölfarið hafi hún flúið land. Hún mótmæli því að vera endursend til Ítalíu, þangað sem hún hafi komið síðla árs 2014. Á Ítalíu hafi hún verið hneppt í kynlífsánauð og hafi það staðið yfir í um eitt ár. Hún hafi þurft að þola kynferðisofbeldi nokkrum sinnum á dag og þurft á læknisaðstoð að halda […]. Fólkið sem hafi misnotað hana á Ítalíu sé ennþá þar og hún vilji ekki fara þangað aftur. Hún hafi þá orðið fyrir fordómum á Ítalíu. Hún þjáist af […]. Á Ítalíu hafi hún átt við svefnörðugleika að stríða og m.a. dvalið í þrjár vikur á sjúkrahúsi vegna andlegrar vanheilsu. Í greinargerð kæranda er greint frá því að í kjölfar birtingar á ákvörðun Útlendingastofnunar hafi kærandi komist í mikið uppnám. Í sálfræðiviðtali þann 21. mars sl. hafi sálfræðingur þurft að kalla til sjúkrabíl og hafi kærandi verið lögð inn á bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans. Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat stofnunarinnar á trúverðugleika kæranda. Telur kærandi þá að svo virðist sem ekkert sjálfstætt mat hafi verið lagt á einstaklingsbundna stöðu kæranda verði hún send til Ítalíu, eða fjallað um þá aðstoð sem henni býðst eða býðst ekki við að leita réttinda sinna, fá sérhæfða aðstoð og hefja þar nýtt líf eftir þá skelfilegu atburði sem hún hafi mátt þola. Ekki sé að finna umfjöllun um getu kæranda til þess að takast á við það ferli í ljósi persónulegra aðstæðna og alvarlegs andlegs ástands hennar. Telur kærandi það alvarlega vanrækslu af hálfu Útlendingastofnunar að líta framhjá einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda en byggja þess í stað eingöngu á almennri umfjöllun um aðstæður á Ítalíu. Kærandi gerir þá athugasemdir við beitingu Útlendingastofnunar á 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 til samræmis við 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi litið einangrað til orðalags 32. gr. a reglugerðar um útlendinga og túlkað það sem svo að þau viðmið sem séu sett þar fram í dæmaskyni séu algild skilyrði. Að mati kæranda sé sú beiting á ákvæðinu ekki bara röng heldur gangi hún beinlínis gegn bæði orðalagi og tilgangi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Tekur kærandi fram að verði ekki fallist á að þessir annmarkar leiði sjálfstætt til þess að ákvörðunin verði felld úr gildi fari kærandi fram á að kærunefnd bæti úr þessum annmarka á kærustigi.

Gerð er grein fyrir aðstæðum á Ítalíu í greinargerð kæranda og vekur kærandi m.a. athygli á skýrslu útgefinni af Evrópuráðinu sem fjallar um innleiðingu ítalskra stjórnvalda á samningi Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali. Þar sé m.a. lýst yfir áhyggjum af þeim mikla fjölda fórnarlamba sem yfirvöld nái ekki að bera kennsl á og að það sé mat skýrsluhöfunda að opinberar tölur endurspegli ekki raunverulegan fjölda fórnarlamba.

Kærandi gerir kröfu um að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi þar sem ekki sé heimilt að senda kæranda til Ítalíu því hún njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Í ákvæðinu sé að finna regluna um non-refoulement, eða bann við að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Telur kærandi m.a. að verði hún send aftur til Ítalíu megi hún búast við aðstæðum sem séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. manréttindasáttmála Evrópu.

Kærandi vísar jafnframt til þess að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hennar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum og fyrri úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Skoða verði raunverulega stöðu kæranda, þá sérstaklega með tilliti til geðheilsu hennar og þeirra skelfilegu atburða sem hún hafi upplifað. Hún sé samkvæmt fyrirliggjandi sálfræðimötum m.a. með […]. Telur kærandi að af fyrirliggjandi mati sálfræðings megi ætla að veruleg hætta sé á alvarlegu og óafturkræfu tjóni á heilsu kæranda verði hún endursend til Ítalíu. Telur kærandi ljóst af gögnum máls að hún sé gríðarlega viðkvæm og þurfi á sérhæfðum stuðningi að halda. Viðkvæm staða hennar, kynþáttur og fyrri reynsla valdi því að hún muni eiga erfitt uppdráttar á Ítalíu verði hún send þangað aftur. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til fyrri úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 nr. 550/2017 og 552/2017 og frá 24. október 2017 nr. 583/2017 og nr. 586/2017. Kærandi vísar auk þess til úrskurðar kærunefndar frá 29. maí 2018 nr. 242/2018 sem hafi varðað unga konu og barn hennar sem hlotið höfðu vernd á Ítalíu. Kærunefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að sérstakar ástæður væru uppi í því máli og fallist á kröfu um að taka bæri málið til efnislegrar meðferðar. Telur kærandi að aðstæður hennar svipi mjög til aðstæðna kæranda í framangreindu máli.

Kærandi áréttar þá fyrirmæli 4. mgr. 2. gr. laga um útlendinga, en þar komi skýrt fram að markmið laganna sé að tryggja mannúðlega og skilvirka meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi. Kærandi telur að með tilliti til ástands flóttamannamála á Ítalíu, sérstaklega viðkvæmrar stöðu kæranda og þeirra atburða sem hún hafi mátt þola á lífsleiðinni séu horfur hennar þar svo slæmar að ekki sé með nokkru unnt að endursenda hana í slíkar aðstæður, svo það samræmist lögum. Aðstæður kæranda séu svo sérstakar og einstaklingsbundnar að ekki verði framhjá þeim litið sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til þess að taka umsókn hennar til efnismeðmeðferðar á Íslandi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar á Ítalíu og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 16. júní 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Ítalíu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi er einstæð kona á fimmtugsaldri. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna kemur m.a. fram að kærandi sé greind með sykursýki og hafi fengið lyf vegna þess. Þá finni hún fyrir verk í hægri öxl og hafi sótt sér aðstoðar vegna þess, m.a. hjá sjúkraþjálfara. Í sálfræðimati dags. 16. október 2018, sem óskað var eftir af hálfu Útlendingastofnunar, kemur m.a. fram að […]. Í vottorði sálfræðings dags. 28. mars sl. kemur þá m.a. fram að kærandi hafi verið í reglulegum viðtölum hjá sálfræðingi frá því í desember 2018. […]. Í viðtali hjá sálfræðingi þann 21. mars sl. hafi kærandi verið í miklu tilfinningarójafnvægi. Kallað hafi verið á sjúkrabíl sem flutt hafi kæranda á bráðaþjónustu geðsviðs. Hún hafi þar hlotið aðstoð og verið útskrifuð sama dag. Í vottorði sálfræðings kemur þá fram að […]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að […].

Í ljósi ofangreinds er það mat kærunefndar að gögn málsins beri með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Italy 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2019);
  • Report concerning the implementation of the Council of Europe Convention on Action against Trafficking in Human Beings by Italy (Council of Europe: Group of Experts on Action against Trafficking in Human Beings, 25. janúar 2019);
  • 2018 Trafficking in Persons Report – Italy (United States Department of State, 28. júní 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);• World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019);
  • Mutual Trust Is Still Not Enough – The situation of persons with special reception needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish Refugee Council og Swiss Refugee Council, 12. desember 2018);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2017 (European Asylum Support Office, 18. júní 2018);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • Integration of Refugees in Greece, Hungary and Italy: Comparative Analysis (European Parliament, desember 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy) og
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati http://www.cir-onlus.org/en/).

Samkvæmt ofangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns gefin út til fimm ára. Unnt er að endurnýja leyfin að fimm árum liðnum en biðtími eftir slíkri endurnýjun getur verið langur. Þá geta einstaklingar sem hafa dvalið á Ítalíu í fimm ár sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fá þá flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma.

Í skýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að húsnæðisaðstoð við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu sé af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld reka þó búsetuúrræðin SIPROIMI (e. System for the Protection of Beneficiaries of International Protection and Unaccompanied Foreign Minors) sem eru nánast eingöngu ætluð handhöfum alþjóðlegrar verndar og fylgdarlausum börnum. Þegar einstaklingar hafa fengið inngöngu í SIPROIMI úrræði mega þeir dvelja þar í sex mánuði. Aftur á móti eru ekki nógu mörg SIPROIMI úrræði til að mæta þeim fjölda sem hefur fengið alþjóðlega vernd. Í framangreindum skýrslum kemur jafnframt fram að sambærileg félagsleg húsnæðisúrræði á vegum sveitarfélaga séu aðgengileg einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar og ítölskum ríkisborgurum, þó að einhver dæmi séu um að sveitarfélög geri kröfu um búsetu á Ítalíu í tiltekinn tíma til að öðlast rétt til aðgangs að slíkum úrræðum.

Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið og eigi útlendingar oft í erfiðleikum með að finna atvinnu við hæfi. Einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu eiga almennt sama rétt og ítalskir ríkisborgar til velferðarþjónustu sem er m.a. veitt af tryggingastofnun ríkisins (í. Istituto Nazionale della Previdenza Sociale/INPS) og sveitarfélögum. Búseta á tilteknu svæði er ekki skilyrði fyrir félagslegri þjónustu, en í einhverjum tilvikum er gerð krafa um búsetu á Ítalíu í ákveðinn tíma, t.a.m. er tiltekin aðstoð við framfærslu eingöngu veitt einstaklingum sem hafa búið í tíu ár á Ítalíu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu að því gefnu að þeir hafi skráð sig inn í heilbrigðiskerfið. Slík skráning er háð því að umsækjandi hafi skráð lögheimili sem eðli máls samkvæmt getur verið hindrun fyrir einstaklinga sem eru án fastrar búsetu. Í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database kemur fram að skráning í heilbrigðiskerfið gildi jafn lengi og dvalarleyfi einstaklings og falli ekki sjálfkrafa úr gildi á meðan á málsmeðferð endurnýjunar dvalarleyfisins standi. Í framkvæmd geti þó einstaklingar með útrunnin dvalarleyfi átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu. Einstaklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar einstaklingar eru utan vinnumarkaðar og án annarrar framfærslu. Í skýrslu Asylum Information Database kemur þó fram að mismunandi túlkun á reglum um greiðsluþátttöku sjúklinga hafi leitt til þess að í sumum sveitarfélögum hafi verið gerð krafa um að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar en eru utan vinnumarkaðar greiði kostnað við heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt framangreindum heimildum eru því ýmsar aðgangshindranir til staðar þegar kemur að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana.

Í ofangreindum skýrslum kemur þá m.a. fram að ítölsk stjórnvöld hafi á undanförnum árum gripið til ýmissa aðgerða í því skyni að berjast gegn mansali, m.a. með gerð og eftirfylgni með aðgerðaráætlun gegn mansali (e. National Action Plan against Trafficking in, and Serious Exploitation of, Human Beings) og með aukinni samvinnu ríkisstofnana og frjálsra félagasamtaka. Þá hefur Ítalía á undanförnum árum sett aukið fjármagn í rannsóknir á mansali í landinu sem og til ýmissa frjálsra félagasamtaka sem aðstoða þolendur mansals. Auk þess hefur verið lögð áhersla á þjálfun lögreglumanna og annarra viðeigandi starfsmanna í þessum málaflokki.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki slíkar að vegna stöðu hennar sem einstaklingur með alþjóðlega vernd á Ítalíu verði þær taldar jafnast á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Ítalíu telur kærunefnd að tryggt sé að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Ljóst er af gögnum máls að kærandi sé m.a. með […] og glími við tiltekna andlega erfiðleika sem hún hafi leitað aðstoðar við hér á landi. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður á Ítalíu og frásagnar kæranda um þá aðstoð sem hún kveðst hafa fengið þar í landi telur nefndin ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar heilbrigðisþjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu að lögum sama rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Ítalíu þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, til að mynda skilyrði um skráningu. Það er mat kærunefndar, á grundvelli gagna málsins, að meðferð við veikindum kæranda sé aðgengileg í viðtökuríki og að aðstæður kæranda séu ekki þess eðlis að þær teljist sérstakar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hennar að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hún geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hennar verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hún um öryggi sitt að einhverju leyti á Ítalíu séu þarlend yfirvöld í stakk búin til þess að veita henni fullnægjandi vernd. Kærandi geti því leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Þá séu til staðar úrræði fyrir þolendur mansals, m.a. á vegum frjálsra félagasamtaka. Kærunefnd áréttar að framangreind gögn beri með sér að ítölsk löggæsluyfirvöld hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að bregðast við ofbeldisbrotum sem íbúar landsins og þeir sem dvelja þar verði fyrir.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017 og úrskurðum nr. 583/2017 og nr. 586/2017 frá 24. október 2017. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum, m.a. þar sem ekki sé um að ræða sömu viðtökuríki. Að því er varðar tilvísun kæranda til úrskurðar kærunefndar nr. 242/2018 frá 29. maí 2018 er það mat kærunefndar að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kæranda í því máli, en kærandi þess máls var einstæð móðir með mjög ungt barn á framfæri.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 24. október 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína þann 24. september 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Kærandi gerir í greinargerð sinni m.a. athugasemd við mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika kæranda, auk þess að gera athugasemd við beitingu stofnunarinnar á 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja henni um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti máls kæranda og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 23. september 2018. Hún sótti um alþjóðlega vernd þann 24. september 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hennar um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                       Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum