Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2007 Innviðaráðuneytið

Skrifað undir verksamning um nýjan Tröllatunguveg

Gengið hefur verið frá samningi um gerð nýs Tröllatunguvegar. Vegagerðin skrifaði undir samning um verkið við lægstbjóðanda, Ingileif Jónsson ehf. í Reykjavík og var Sturla Böðvarsson samgönguráðherra viðstaddur undirritunina á Ísafirði á föstudag.

Nýr Tröllatunguvegur verður alls 24,5 km langur. Verði verktaki búinn að leggja bundið slitlag á veginn fyrir 1. september haustið 2008 fær hann greitt flýtifé en endanleg verklok eru áætluð 2009.

Vegurinn er nr. 605 og liggur milli Djúpvegar nr. 61 í Steingrímsfirði og Vestfjarðavegar nr. 60 í Geiradal ekki langt frá Króksfjarðarnesi. Liggur vegurinn um Geiradal, Gautsdal, Tröllatunguheiði og Arnkötludal.

Í ár eru 200 milljónir króna áætlaðar til framkvæmdanna og samkvæmt samgönguáætlun áranna 2007 til 2010 sem samþykkt var á Alþingi í mars síðastliðnum eru 700 milljónir áætlaðar í verkefnið á næsta ári og síðan að lokaframlög komi árið 2009.

Alls bárust 9 tilboð í verkið og var tilboð Ingileifs Jónssonar ehf. það lægsta, 661,8 milljónir króna, sem er 76,5% af kostnaðaráætlun, en það hæsta 879,4 milljónir króna frá Ístaki. Næst lægsta tilboðið var frá Klæðningu ehf. uppá 696 milljónir króna. Tvö tilboð voru yfir 865,6 milljóna króna kostnaðaráætlun en sjö tilboð voru undir þeirri áætlun.

Þrír undirverktakar taka þátt í verkinu. Fossvélar á Selfossi sjá um efnisvinnslu, Suðurverk um sprengingar og Borgarverk um klæðningu.

Áætlað er að framkvæmdir við vegagerðina hefjist í maí. Vinna verður hafin að sunnanverðu með því að leggja veginn upp Gautsdalinn. Ekki er gert ráð fyrir því að vinna neitt að ráði Strandamegin í Arnkötludalnum fyrr en á næsta ári.

Helstu magntölur eru:

Bergskeringar 350.000 m3

Skeringar í laus jarðlög 480.000 m3

Fyllingar og fláafleygar 780.000 m3

Neðra burðarlag 120.000 m3

Efra burðarlag 40.000 m3

Klæðning 190.000 m2

Stálplöturæsi 170 m

Ræsalögn 1.600 m

Víravegrið 6.000 m

Frágangur fláa 570.000 m2



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum