Hoppa yfir valmynd
24. október 2008 Innviðaráðuneytið

Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum rúma tvo milljarða króna

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga lýkur á mánudag greiðslu framlaga að fjárhæð rúmlega tveir milljarðar króna til sveitarfélaga í landinu en framlögin áttu að berast sveitarfélögunum um næstu mánaðamót. Greiðslunum er flýtt til að bæta fjárhagsstöðu sveitarfélaga.

Kristján L. Möller samgönguráðherra boðaði á fyrsta ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 17. október síðastliðinn að flýtt yrði greiðslu umræddra framlaga Jöfnunarsjóðs og hafa starfsmenn sjóðsins og samgönguráðuneytisins unnið hörðum höndum að útreikningi og greiðslu framlaganna síðustu daga. Einnig sagði ráðherra á fundinum að stefnt yrði að því að greiða í nóvember 250 milljónir króna af eftirstöðvum vegna 1.400 milljóna króna aukaframlags í Jöfnunarsjóð á árinu en nú þegar er búið að greiða 900 milljónir.

Þá er í samgönguráðuneytinu verið að vinna að tillögum að reglum fyrir úthlutun 250 milljóna króna framlags til sveitarfélaga vegna skerðingar á aflamarki og verða reglurnar kynntar fljótlega.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum