Hoppa yfir valmynd
28. desember 2005 Utanríkisráðuneytið

3,2 milljóna króna framlag til baráttunnar gegn mansali

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja 3,2 milljónum króna til baráttunnar gegn mansali á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2005 voru 4,0 milljónir króna til ráðstöfunar til stuðnings verkefnum á sviði mannréttindamála og hafði 800 þúsund krónum áður verið ráðstafað til Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands. Íslensk stjórnvöld hafa lagt ríka áherslu á baráttuna gegn mansali á vettvangi ÖSE. Stofnunin hefur á undanförnum árum markvisst eflt starfsemi á þessu sviði með sértækri aðstoð við einstök aðildarríki, m.a. á sviði lagasamvinnu, uppfræðslu almennings, þjálfun lögreglumanna og landamæravarða. Þá starfar sérstakur fulltrúi ÖSE sem hefur yfirumsjón með aðgerðum stofnunarinnar gegn mansali.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum