Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2022 Utanríkisráðuneytið

UNICEF: Milljónir barna bólusettar gegn malaríu

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur gert tímamótasamning við framleiðslufyrirtækið GSK sem sérhæfir sig í RTS,S bóluefninu. Það er fyrsta bóluefnið gegn malaríu sem verndar börn gegn þeim lífshættulega sjúkdómi. Með samningnum er ætlað að tryggja 18 milljónir skammta af bóluefninu á næstu þremur árum.

Árið 2020 létust nærri hálf milljón barna í Afríku úr malaríu en sjúkdómurinn berst með moskítóflugum og er ein helsta dánarorsök barna undir fimm ára aldri.

„Með þessu er verið að senda skýr skilaboð til þeirra sem þróa bóluefni gegn malaríu að halda vinnu sinni áfram, vegna þess að bóluefni gegn malaríu eru nauðsynleg og eftirsótt,“ segir Etleva Kadilli, framkvæmdastjóri birgðarstöðvar UNICEF. „Við vonumst til þess að þetta sé bara byrjunin. Þörf er á áframhaldandi nýsköpun til að þróa ný bóluefni, auka framboð og skapa heilbrigðari bóluefnamarkað.“

Kadilli segir þetta vera stórt skref fram á við í sameiginlegri viðleitni til að bjarga lífi barna og draga úr hættum malaríu samhliða öðrum forvörnum sem hafa verið notaðar til þessa gegn smiti.

RTS,S bóluefnið er afrakstur 35 ára rannsókna og þróunar og er fyrsta bóluefnið sem til er gegn sníkjusjúkdómum. Þar sem framboðið er enn takmarkað verða börn sem búa á svæðum þar sem hættan og þörfin er mest sett í forgang.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum